Birkir Már með tvö og Aftur­elding í undan­úr­slit í fyrsta skipti

Katla Margrét Jónsdóttir skrifar
Mosfellingar skrifuðu í kvöld nýjan kafla í sögu félagsins þegar þeir komust í undanúrslit Mjólkurbikarsins.
Mosfellingar skrifuðu í kvöld nýjan kafla í sögu félagsins þegar þeir komust í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Afturelding lagði Stjörnuna 3-1 í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í miklum markaleik í blíðunni í Mosfellsbæ.

Það er ljóst að lið Aftureldingar markar spor í sögu félagsins með sigrinum. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir komast í undanúrslit í bikarkeppninni. Þetta var einnig einungis annað skipti þar sem Mosfellingar komast í 8-liða úrslit. Afturelding sitja í örðu sæti í Lengjudeildinni og því er ljóst að Mosfellingar eru á mikilli siglingu þessa dagana.

Heimamenn hófu leikinn og gerðu það af krafti en það voru það Stjörnumenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins sem kom á 6. mínútu. Birnir Snær Ingason tók hornspyrnu sem rataði inn á nærsvæðið. Boltinn barst til Heiðars Ægissonar sem stangaði knettinum inn í markið. Heiðar byrjaði leikinn óvænt en hann var færður í byrjunarliðið eftir að Gustav Kjeldsen meiddist í upphitun.

Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Eftir fyrsta markið koðnaði leikurinn töluvert niður. Leikurinn varð þá tíðindalítill allt þar til Afturelding hóf að sækja í sig veðrið undir lok fyrri hálfleiks. 

Fyrsta alvöru marktækifæri Aftureldingar var sannkallað dauðafæri. Axel Andrésson gaf langt innkast sem endaði í miðjum teignum og þaðan af rataði boltinn til Jóns Vignis Péturssonar sem skaut á markið úr lofti. Síðustu 10 mínútur hálfleiks sótti Afturelding hart að marki Stjörnunnar. Stjarnan stóðst þó pressu og leiddi 1-0 í hálfleik.

Stjarnan var sterkari aðilinn í upphafi seinni hálfleiks og sótti af krafti að marki Aftureldingar. Gestirnir áttu erfitt með að halda boltanum og skapa sér færi, en fyrsta marktækifæri þeirra í hálfleiknum kom loks á 60. mínútu.

Á 64. mínútu tók leikurinn skyndilega stakkaskiptum. Afturelding sneri taflinu sér í vil með ótrúlegum hætti og opnaði markareikning sinn með þremur mörkum á aðeins 13 mínútna kafla. 

Á örfáum augnablikum breyttist staða leiksins úr því að Stjarnan væri að leiða leikinn í ótrúlega forystu Aftureldingar. Fyrsta mark Aftureldingar kom á 64. mínútu þegar Birkir Már Sævarsson kom gestunum yfir með föstum skalla eftir góða fyrirgjöf frá Óðni Bjarkasyni. Mosfellingar voru þó hvergi nærri hættir og aðeins tveimur mínútum síðar tvöfölduðu þeir forystuna. Þá var það Bart Kooistra sem reis hæst í teignum og stangaði boltann í netið.

Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Afturelding hélt áfram að sækja af krafti og innsiglaði glæsilegan kafla sinn á 75. mínútu þegar Birkir Már Sævarsson skoraði sitt annað mark í leiknum og þriðja mark Mosfellinga.

Það sauð upp úr undir lok leiksins. Gul spjöld fóru á loft hvað eftir annað þegar leikmenn misstu sig í hita leiksins og talsverð harka einkenndi síðustu mínúturnar. Stjörnumenn sýndu greinileg merki um pirring á meðan Aftureldingarmenn börðust fyrir því að verja forystu sína.

Þegar dómarinn flautaði til leiksloka var hins vegar engin spurning um úrslitin. Afturelding hafði snúið leiknum sér í vil með magnaðri frammistöðu í seinni hálfleik og tryggði sér verðskuldað sæti í undanúrslitum.

Atvik leiksins

Ótrúlegur 13 mínútna kafli Aftureldingar í seinni hálfleik. Eftir að hafa verið marki undir og átt undir högg að sækja um tíma skoruðu Mosfellingar þrjú mörk á árunum 64. til 75. mínútu og sneru leiknum gjörsamlega við. Þar lagði Birkir Már Sævarsson grunninn að sigrinum með tveimur mörkum og Afturelding tryggði sér sæti í undanúrslitum.

Stjörnur og skúrkar

Birkir Már Sævarsson á titilinn maður leiksins skilið. Hann skoraði tvö mörk í magnaðri endurkomu Aftureldingar og var sífelld ógn við mark Stjörnunnar. Einnig á Bart Kooistra hrós skilið fyrir sitt framlag og mikilvægt mark.

Dómarinn

Dómarar voru Twana Khalid Ahmed, Gylfi Már Sigurðsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson. Leiknum var svolítið bara leyft að fljóta og var flautan ekki mikið notuð fyrr en á loka fjórðungi seinni hálfleiks.

Stemning og umgjörð

Veðrið lék við áhorfendur og góð mæting var á vellinum. Stuðningsmenn Aftureldingar létu vel í sér heyra, sérstaklega eftir að liðið sneri leiknum sér í vil í seinni hálfleik. Þegar lokaflautið gall brutust út mikil fagnaðarlæti enda hafði félagið í fyrsta sinn í sögu sinni tryggt sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar.

Jökull Elísarbetarson á hliðarlínunni í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Jökull Elísarbetarson: Djúpar sveiflur milli topps og botns

Jökull Elísarbetarson var ánægður með fyrri hálfleikinn í heild sinni, þrátt fyrir að liðið hafi misst aðeins taktinn undir lok hans.

„Mér fannst fyrsti hálftíminn í fyrri hálfleik mjög góður hjá okkur. Mér fannst við bara draga svolítið úr, þ.e. tempóinu eftir síðasta korterið í fyrri hálfleik. Það korter fór fram of mikið á okkar vallarhelmingi,“ sagði Jökull.

Hann sagði liðið hafa komið ákveðið til leiks eftir hléið en að illa hafi gengið að nýta þau færi sem sköpuðust.

„Mér fannst við svo frábærir í byrjun seinni. Við fáum gott færi og svona, en við náum ekki að nýta mómentumið og þeir eiga bara tvær góðar sóknir. Þeir gera sóknina vel og við gerðum það ekkert sérstaklega vel. Þeir snéru þessu hratt og við náðum ekki að opna á þá nógu mikið. Það voru alls konar hlutir sem gerðust og mér fannst við eiga of fáa einstaklinga í kringum teiginn, einhver augnablik og einhver brot, sem er kannski bara augljóst. Þeir gerðu þetta bara vel. Hrós á Aftureldingu,“ sagði Jökull.

Aðspurður hvað hafi helst skilið á milli liðanna á þeim kafla þegar Afturelding sneri leiknum sér í hag benti hann á hreyfingu boltans og gæði í sóknarleik andstæðinganna.

„Þegar við vorum öflugir þá fannst mér við hreyfa boltann mjög vel. Þetta var mjög kaflaskipt. Það voru of djúpar sveiflur á milli topps og botns,“ sagði Jökull.

Magnús Már Einarsson fagnar sigri með strákunum sínum.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Magnús Már Einarsson: Markmiðið að sigra næsta borð

„Við erum alltaf með trú á því sem við erum að gera. Við byrjuðum ekkert sérstaklega vel, þeir skora náttúrulega eftir 5 mínútur. Við töluðum um það fyrir leikinn að vera með trú allan tímann og svo bara kemur stemningin inn aðeins undir lok fyrri hálfleiks,“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, aðspurður út í leikinn.

„Í seinni hálfleik eru þeir vissulega betri í byrjun en eftir það finnst mér við eiga frábæran kafla þar sem við skorum þessi mörk. Svo verjumst við alveg stórkostlega og þeir fá lítið sem ekkert af færum. Þetta var frábærlega gert af strákunum, þvílík liðsheild,“

Magnús lýsir því hvernig liðsmenn Aftureldingar töldu sig vita það fyrir leikinn að þeir myndu vinna hann og hann segir að það hafi einmitt verið ástæða þess að Afturelding sigraði leikinn.

„Við fórum í 8-liða úrslit í fyrsta skipti í fyrra, undanúrslit í fyrsta skipti núna og vonandi enn þá lengra. Ef við værum í tölvuleik þá værum við búnir með fjögur borð og búnir að vinna þau öll. Við erum komnir á næstsíðasta borðið. Það er bara markmiðið okkar að sigra næsta borð. Við erum bara gíraðir og spenntir að komast í undanúrslit,“ sagði Magnús.

Óðinn Bjarkason í leiknum í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Óðinn Bjarkason: Þurftum bara eitt mark

„Mér fannst síðasta korterið af fyrri hálfleik bara allt í lagi, við vorum þá aðeins byrjaði að gera það sem við erum góðir í. Í hálfleik reyndum við bara að gera það sem við vorum að gera undir lokin, reyna að fá boltann aðeins meira inn í teig og sækja þetta fyrsta mark. Þá vissum við vel að þau yrðu fleiri,“ sagði Óðinn Bjarkason um leikinn.

„Þetta var öflug liðsframmistaða. Við höfum alveg spilað betur en við erum náttúrulega að spila við lið sem er í deild ofar okkur og þá er erfitt að spila eins og við viljum spila. Þeir eru betri en þau lið sem við mætum dags daglega. Mér fannst við samt ná að spila svona nánast eins og við viljum spila, fyrir utan þá fyrstu 20 mínúturnar í fyrri hálfleik,“ sagði Óðinn varðandi frammistöðu Aftureldingar í leiknum.

„Við töluðum um það í hálfleik að við þyrftum bara að ná einu marki til þess að sigra leikinn og það gekk eftir, og það var það sem við trúðum á komandi inn í hálfleikinn,“ sagði Óðinn Bjarkason

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira