Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 22. maí 2026 17:18 Frá leik hjá Keflavík fyrr á tímabilinu Vísir/Viktor Freyr Keflavík lagði Þór á heimavelli í 8. umferð Bestu deildar karla eftir mikla baráttu í kaflaskiptum leik. Keflvíkingar taka því öll þrjú stigin heim. Keflavík situr nú í 8. sæti í deildinni með átta stig og Þór í 10. sæti með sex stig. Keflvíkingar byrjuðu leikinn mjög vel og voru óneitanlega yfirburðarliðið fyrstu 30 mínúturnar. Mark Keflvíkinga sem var jafnframt eina mark leiksins kom á 6. mínútu eftir hornspyrnu frá Muhamed Alghoul. Hornspyrnan var tekinn stutt og boltinn barst út til vinstri til Þorláks Breka Baxter. Þorlákur sendi svo frábæra sendingu á Marin Brigic sem kom á ferðinni og stangaði knettinum í netið. Keflvíkingar stjórnuðu leiknum með yfirburðum í fyrri hálfleik. Þórsarar virtust í raun eiga í miklum erfiðleikum með sóknarleik Keflvíkinga og var útlitið svo að Þórsarar myndu sennilega gjalda afhroð í þessum leik. En svo var ekki þar sem að Þórsarar virtust hafa fundið kjarkinn eftir hálfleik. Það var eftirtektarverð breyting yfirbragði Þórsara og sást það vel að þeim var farið að hungra í jöfnunarmark. Leikurinn jafnaðist út og bæði lið sóttu að markinu. Mikið jafnræði ríkti þá í leiknum og ljóst var að sigur í þessum leik gæti lent báðu megin. Fyrsta marktilraun Þórsara kom ekki fyrr enn á 66. mínútu en þá voru þeir loksins komnir í álitlega stöðu. Atli Sigurjónsson reyndi að pota boltanum inn eftir fína fyrirgjöf frá Christian Jakobsen. Algjörlega upplagt færi sem Þórsurum tókst ekki að nýta. Leikurinn varð mjög spennandi síðasta þriðjung leiksins og bæði lið fengu sín færi sem þeim ekki tókst að nýta. Dómarinn bætti sex mínútum við leikinn og undir lok uppbótatímans voru Keflvíkingar nálægt því að kasta sigrinum frá sér með dýrkeyptum mistökum. Ingimar Arnar Kristjánsson, leikmaður Þórs, slapp þá í gegn og var kominn inn í teig Keflavíkur þegar markvörðurinn Ásgeir Orri Magnússon kom út á móti honum, fór í manninn og felldi hann. Dómarinn var ekki í vafa og benti umsvifalaust á vítapunktinn. Ásgeir vissi strax upp á sig sökina og bjó sig undir vítaspyrnuna. Einar Freyr Halldórsson tók vítið fyrr Þórsara en skaut boltanum beint í stöngina. Með því var leik lokið og báru Keflvíkingar sigur af hólmi. Atvik leiksins Atvik leiksins var óneitanlega vítaspyrnan í blálokin. Þetta var allra síðasta tækifæri Þórsara að ná fram jöfnunarmarki og því tilheyrandi spenna í stúkunni. Einar Freyr Halldórsson tók vítið fyrir Þórsara en skaut boltanum í stöngina. Stjörnur og skúrkar Stjarna leiksins var Þorlákur Breki Baxter fyrir heimsklassa stoðsendingu á Marin Brigic sem náði fram skallamarki. Skúrkur leiksins var Ásgeir Orri Magnússon fyrir klaufalegt brot á Ingimar Kristjánssyni á lokamínútum leiksins. Dómarinn Dómarar voru Ívar Orri Kristjánsson, Birkir Sigurðarson og Kristófer Bergmann sem stóðu sig heilt yfir bara nokkuð vel. Stemning og umgjörð Stemningin hér á HS orku vellinum var mjög góð. Bæði lið voru með góðann hóp stuðningsmanna sem hikuðu ekki við að láta í sér heyra. Stuðningsmenn Þórs voru ívið meira áberandi í stúkunni heldur en stuðningsmenn Keflavíkur. Veðrið var ekki nógu gott og stríddi leikmönnum. Það rigndi og með henni fylgdi tilheyrandi bleyta sem hafði mögulega örlítil áhrif á leikinn. Haraldur Freyr Guðmundsson: Stálheppnir að þeir hafi klikkað „Þetta var kaflaskipt. Við byrjuðu leikinn mjög vel. Fyrstu þrjátíu mínúturnar erum við töluvert betri og sköpum okkur fínar stöður og góð færi. Við skorum gott mark. Svo jafnast leikurinn mjög mikið út og er svolítið fram og til baka. Þá verður leikurinn að miklu leyti 50-50 og við stálheppnir í lokin að þeir hafi klikkað á vítinu,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur aðspurður út í leikinn. „Við ætluðum að pressa á þá hátt, vera mikið með boltann, finna millisvæði og fá boltann út á kant. Við ætluðum okkur að vera með gott rest defence, sem gekk vel framan af en einhvern veginn eflast Þórsararnir og þetta verður verulega jafn og erfiður leikur,“ sagði Haraldur. „Við spilum við ÍBV næst í eyjum og það verður erfitt verkefni og við mætum þangað til þess að ná í þrjú stig og vinna leikinn,“ sagði Haraldur aðspurður út í komandi leiki Keflavíkur. Sigurður Heiðar Höskuldsson: Þetta er verulega mikið áhyggjuefni. „Mér fannst við allt í lagi. Mér fannst við vera með töluvert betra hugarfar heldur en í síðasta leik. Það voru svolítið erfiðar aðstæður, sleipur völlurinn og svoleiðis en mér fannst bara spilaður ágætur fótbolti. Mér fannst við í fyrri hálfleik ekki spila nægilega vel á völlinn. Við vorum að reyna hluti sem gengu bara ekkert upp á vellinum. Það var allt of mikið um tæknilegar villur og töpuðum boltum. Við reyndum að einfalda leikinn svolítið í síðar hálfleik og það fannst mér ganga ágætlega. Auðvitað svekkjandi að ná ekki inn almennilegu færi fyrr enn í lokinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson aðspurður út í leikinn. „Við hefum þurft að hitta fleiri mikilvægar sendingar á síðasta þriðjungnum. Sóknin var ekki nógu góð og við vorum ekki að skora nógu mikið af mörkum eða að skapa nógu mikið af færum. Við vorum klaufar á síðasta þriðjung og ekki næstum því nógu graðir að fara inn í boxið og skora mörk, það er verulega mikið áhyggjuefni,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson aðspurður út í hvað hefði betur mátt fara í leik Þórsara. „Ég vil sjá meira af þessu hugarfari, sem við sáum í dag, þetta er mikil bæting. Mér fannst varnarleikurinn að mörgu leyti fínn. Ég er svolítið svekktur með það hvernig við vorum í síðasta þriðjungi. Hugarfarið sem fylgir því að fara inn í boxið og skora þarf að vera töluvert betra,“ sagði Sigurður aðspurður út í hvað hann vill sjá frá Þórsurum í komandi leikjum. Besta deild karla Keflavík ÍF Þór Akureyri Íslenski boltinn