Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 11:09 Óskar Hallgrímsson hefur búið í Úkraínu í um sex ár þar sem hann rekur lítið listastúdíó ásamt konunni sinni og flytur fréttir af stríðinu. vísir/elín margrét Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. „
Maður er dofinn og þetta er erfitt, sérstaklega í ár því núna eru fjögur ár síðan stríðið hófst en ég er einn heima í kofanum. Það komu upp veikindi í fjölskyldunni svo konan mín þurfti að vera með fjölskyldunni sinni í Odessa. Ég er einn í kofanum og það er svakalega skrýtið að vakna einn hérna,“ segir Óskar í viðtali í Bítinu á Bylgjunni. „Þetta er tíminn sem maður fer að hugsa til baka. Allt sem maður er búinn að sjá og upplifa og hvernig heimurinn er búinn að bregðast við og hvað maður er vonsvikinn yfir viðbrögðunum.“ Myglaðir ávextir Hann segir það sem sitji í honum eftir fjögur ár séu viðbrögð og ákvarðanir sem hafa verið teknar hvað varðar aðstoð heimsbyggðarinnar. „Það kom svo seint og þá var það bara útrunnið. Þetta er eins og að kaupa ávexti og geyma þá svo inni í skáp í nokkra mánuði. Þegar vopnin eru loksins komin þá eru Rússar löngu búnir að bregðast við því.“ Óskar segir Íslendinga góða í að gagnrýna aðra og eigi erfitt með að líta í eigin barm. Hann tekur fram að íslenska ríkið hafi staðið sig vel og verið öflugt í stuðningi sínum við Úkraínu en hefði verið hægt að gera mikið meira mun fyrr. „Ef þú lítur á þetta hlutfallslega hefur Ísland, miðað við aðrar Evrópuþjóðir, verið mjög lágt á listanum.“ Lýjandi starf Í dag verður minningarathöfn í Úkraínu til að minnast þeirra sem fallið hafa. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er meðal viðstaddra auk leiðtoga á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Óskar telur það ólíklegt að hann fari á athafnirnar þar sem hann vakti lofthelgina. Dagurinn sé enginn fagnaðardagur. „Ég var í gær að reyna að setja það í orð hvernig mér líður, hvað er í gangi í höfðinu á mér á þessum degi og sorg er ekki nægilega lýsandi. Maður er einhvern veginn tómur og fer að hugsa. Þetta er dagur sem maður er bara orkulaus,“ segir hann. Óskar lýsir því hvernig hann hafi stanslaust reynt að komast í samband við fólk á Íslandi frá upphafi stríðsins til að bæði fræða það um stöðuna og reyna að koma saman sjálfboðaliði í Úkraínu. Slík vinna sé lýjandi. „Frá því ég opna augun á morgnana og þangað til ég fer að sofa á kvöldin er ég að reyna að gera eitthvað.“ Rússar stundi „mulningshernað“ Hann segir erfitt að meta hvort Rússar séu að vinna eða tapa, það fari eftir því hvaða mælistika sé notuð. „Rússar hafa verið að tapa stríðinu en það fer eftir því hvar þú setur mælistikuna. Að vinna landsvæði, er það að vinna? Rússar eru að tapa að meðaltali þúsund manns á dag og hafa verið síðastliðin ár,“ segir Óskar. „Það er ekkert búið að gerast hjá þeim og þeir eru að henda þúsundum, tugum þúsunda í mánuði, oft á borg til þess að reyna ná henni og þeir eru ekkert að ná neinu á endanum. Staðan er sú að Rússar halda bara áfram þessum mulningshernaði eins og ég kalla það.“ Rússar séu að reyna ná borg í austurhluta Úkraínu og séu búnir að koma sautján þúsund manna herliði í kringum borgina, sem eru fleiri en voru í upphaflegu innrásinni. „Þeir eru búnir að vera að dúndra á hana. Þetta er pínulítil borg, þeir eru búnir að tapa held ég þreföldu eða fjórföldu magni af fólki sem bjó í borginni til að ná henni.“ Óska eftir jólasveininum Í lok viðtalsins segja þáttastjórnendur Bítisins að þeir óski þess að stríðinu fari að ljúka. „Heimurinn endar öll viðtöl á að segja þetta. Segja, við óskum nú að þetta fari að klárast, eins og að óska eftir að jólasveinninn komi. Það verður bara að gera eitthvað,“ svarar Óskar.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Íslendingar erlendis Hernaður Bítið Bylgjan Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Státum af klárasta barþjóni Evrópu Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Bíll í ljósum logum Innlent Fleiri fréttir Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Sjá meira