Hernaður

Fréttamynd

„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“

Ráðgjafi Vladimírs Pútín segir að Rússar séu tilbúnir til þríhliða viðræðna milli Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa mótmælt ummælum erindreka Donalds Trump um að Pútín sé mannvinur.

Erlent
Fréttamynd

Björguðu særðum her­manni með dróna

Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott.

Erlent
Fréttamynd

Full­trúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín

Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum.

Erlent
Fréttamynd

Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir

Ráðamenn í Suður-Kóreu heita hörðum viðbrögðum standi einræðisstjórn Norður-Kóreu við þær hótanir að auka viðbúnað á landamærum ríkjanna. Aukin spenna er á Kóreuskaga eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust alvarlega vegna jarðsprengja sem Suður-Kóreumenn segja að hafi verið komið fyrir af hermönnum frá Norður-Kóreu.

Erlent
Fréttamynd

Hótar að auka við­búnað á landa­mærunum

Kim Yo Jong, áhrifamikil systir norðurkóreska einræðisherrans Kim Jong Un, segir að landamæri ríkisins og Suður-Kóreu séu „mjög óstöðug“. Vegna þessa og annarra aðgerða „glæpamanna“ í Suður-Kóreu sé meðal annars verið að skoða að auka viðbúnað þar og setja aftur upp stóra hátalara við landamærin og básúna pólitísk skilaboð yfir þau.

Erlent
Fréttamynd

Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns

Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur

Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf.

Erlent
Fréttamynd

Drónar: vinur eða ó­vinur?

Við Íslendingar erum í þekkingaruppbyggingu þessa dagana í öryggis og varnarmálum. Höfum við nú þegar séð að öryggis og varnarmál snerta víðari grunn en við töldum áður og þarft er að gera áætlanir og fjárfesta.

Skoðun
Fréttamynd

Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur í Rúss­landi

Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars.

Erlent
Fréttamynd

Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða

Málaliðar á vegum Erik Prince, stofnanda málaliðafyrirtækisins Blackwater, lentu í umsátri í Austur-Kongó í síðasta mánuði. Að minnsta kosti tuttugu málaliðar og hermenn féllu eða særðust í umsátrinu og þar á meðal maður sem barðist í UFC.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur

Íranir hafa fjölgað árásum sínum á olíuflutningaskip á Hormússundi og gera árásir á stærra svæði. Þetta hefur skilað nokkrum árangri í vel heppnuðum árásum en markmið Írana er að halda eldsneytisverði háu og reyna þannig að hafa áhrif á þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“

Donald Trump staðhæfði í gær að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí hefðu samþykkt orkuinnviðavopnahlé, af því að hann hefði sagt að þeir ættu að samþykkja það. Þá hélt forsetinn því fram að það væri Selenskí en ekki Pútín sem stæði í vegi friðar, eins og hann hefur ítrekað gert áður.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu

Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að meina ríkjum Evrópu að kaupa vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínu. Það verði gert ef Úkraínumenn hætti ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl

Tólf eru látin eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, og á fjórða hundrað særðust. Öllu flugi hefur verið beint annað og starfsemi vallarins tímabundið lögð niður. Hútar eru sagði ábyrgir fyrir árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól

Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins.

Erlent
Fréttamynd

Helsti herbloggari Rúss­lands hand­tekinn í Svart­fjalla­landi

Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi.

Erlent
Fréttamynd

Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum

Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray

Hermenn frá Eritreu hafa verið sendir til Tigray-héraðs í Eþíópíu en þar hefur stjórnarherinn gert árásir á hermennina, sem munu hafa verið sendir til að stuðnings uppreisnarmanna Frelsisfylkingarinnar svokölluðu og bandamanna þeirra. Átök brutust út í Eþíópíu í síðasta mánuði og er óttast að þau geti dreift frekar úr sér í Afríku.

Erlent
Fréttamynd

Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauða­hafs

Sveitir ríkisstjórnar Jemen hafa sótt hratt fram gegn Hútum við strendur Rauðahafs. Ríkisstjórnin segist hafa hernumið mestallt það svæði sem Hútar lögðu skyndilega undir sig í síðasta mánuði og mun ríkisstjórnin hafa náð aftur stjórn á Bab el-Mandeb-sundi við suðurenda Rauðahafs.

Erlent
Fréttamynd

Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum

Forseti Jemen segist ætla að ráðast í umfangsmiklar hernaðaraðgerðir til að ná aftur öllu því landsvæði sem uppreisnarmenn Húta hafa lagt undir sig á síðustu árum. Sádar, sem eru helstu stuðningsmenn jemensku ríkisstjórnarinnar, hafa að undanförnu staðið í undirbúningi fyrir stórsókn gegn Hútum.

Erlent
Fréttamynd

Sagðir undir­búa stórsókn gegn Hútum

Ráðamenn í Sádi-Arabíu eru sagðir skipuleggja stórsókn gegn Hútum í Jemen. Meðal annars kemur til greina að reka Húta frá stöndum Bab el-Mandebsunds, en vera þeirra þar gerir Hútum kleift að loka öðrum enda Rauðahafs. Sóknin yrði leidd af sveitum ríkisstjórnar Jemen, og nyti stuðnings Sáda úr lofti og ráðgjafar og upplýsinga frá Bandaríkjamönnum.

Erlent
Fréttamynd

Syrgði Sovét­ríkin og hótaði notkun kjarn­orku­vopna

Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk

Bresk-íranskur ríkisborgari hefur verið handtekinn í Bretlandi þar sem hann er grunaður um að skipuleggja hryðjuverk í tengslum við atvik við RAF Fairford-herstöðina um helgina. Breskir og bandarískir ráðamenn hafa sakað írönsk stjórnvöld um aðkomu að atvikinu en þau þvertekið fyrir það.

Erlent