Leik lokið: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Árni Gísli Magnússon skrifar 22. júní 2025 21:10 Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru á toppi Bestu deildarinnar. Vísir/Diego Gylfi Þór Sigurðsson var bæði með mark og stoðsendingu þegar Víkingar náðu fjögurra stiga forskoti á toppi Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld eftir 2-0 sigur á KA á Akureyri. Gylfi lagði upp skallamark fyrir Nikolaj Andreas Hansen í fyrri hálfleik og skoraði síðan sjálfur í síðari hálfleik með þrumuskoti frá vítateigslínunni. KA-menn eru því áfram í fallsæti en Víkingar hafa unnið fjóra af síðustu fimm deildarleikjum sínum og verða örugglega áfram á toppnum eftir þessa umferð. Blikar eru fjórum stigum á eftir en eiga leik inni. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir. Gylfi Þór Sigurðsson var með mark og stoðsendingu í kvöld.Vísir/Diego „Gæðin í liðinu mun alltaf skora mörk“ „Mjög vel, erfiður leikur. Alltaf erfitt að koma hingað og ég held að KA séu betri en staðan í deildinni sýnir. Þeir eru góðir að spila boltanum og síðan eru þeir líka góðir í að nýta kannski kantana og koma með krossa og svona stundum með aðeins lengri bolta. Mér finnst þeir vera fínasta lið, ég held að þeir eigi mikiði inni, en bara mjög ánægður með að taka þrjú stig og fara heim.“ KA varðist vel og hleypti Víkingum ekki í nein alvöru færi lengi vel í fyrri háfleik en Víkingar héldu mikið meira í boltann. Gylfa fannst leikplan Víkings ganga vel upp í dag. „Já ég held það. Við vorum kannski smá kærulausir þegar við vorum að missa boltann, þeir eru mjög góðir í skyndisóknum þannig kannski svolítið okkur að kenna í fyrri hálfleik að við leyfðum leiknum að vera mikið fram og til baka, við hefðum getað haldið boltanum betur. Ég held að planið sem við lögðum upp með var bara að vera sterkir varnarlega og halda hreinu og gæðin í liðinu munu alltaf skora einhver mörk.“ Gylfi lagði upp fyrsta mark leiksins sem Nikolaj Hansen skoraði með skalla eftir aukaspyrnu Gylfa sem var vel útfærð og virtist koma beint af æfingasvæðinu. „Já, við höfum talað um þetta nokkrum sinnum, þannig maður þarf eiginlega bara að hitta hann eitthvert þarna upp í loftið og þá kemur Niko (Nikolaj Hansen) og skallar hann inn, svakalegur skalli hjá honum.“ „Bara fínt sko, þetta var svolítið erfiður leikur, eins og ég sagði mikið fram og til baka sérstaklega í fyrri hálfleik. Vorum kannski aðeins fannst mér í leiknum, aðeins svona niður í seinni hálfleik að stjórna leiknum, rólegri og reyna kannski að halda boltanum, sást kannski mest síðustu 20 mínúturnar en bara leið mjög vel“, sagði Gylfi aðspurður hvernig honum hafi liðið á vellinum. Víkingar eru með sterkan og breiðan hóp og hafa verið að endurheimta menn úr meiðslum sem er jákvætt þar sem liðið á Evrópuleiki framundan í næsta mánuði ásamt því að vera á toppnum í Bestu deildinni. „Ég meina við erum bara búnir að tapa einum leik í einhverjum fimm leikjum sirka, á móti Breiðablik. Maður þarf ekkert alltaf að spila eitthvað rosalega vel, þarft bara að vinna leiki og við höfum verið að gera það og eins og ég segi; meirihlutann af leikjunum munum við spila vel en verðum bara að passa að þegar við erum ekki upp á okkar besta að við náum samt í úrslit.“ Besta deild karla KA Víkingur Reykjavík