Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 2-1 Breiða­blik | Dramatík í Eyjum

Einar Kárason skrifar
340833113_1394632367954085_5034313360894751676_n
vísir/hulda margrét

Prýðis­veður var á blautum Há­steinsvelli í Vest­manna­eyjum þegar ÍBV tók á móti Breiða­blik í þriðju um­ferð bestu deildarinnar. Eyja­menn enn í leit að sínum fyrstu stigum á meðan Blikar höfðu tapað einum og unnið einn fyrir leik dagsins.

Mark­tæki­færi voru af skornum skammti fyrri hluta fyrri hálf­leiks en það voru heima­menn sem komust ná­lægt því að brjóta ísinn eftir um tíu mínútna leik þegar Jón Inga­son átti skalla að marki eftir horn­spyrnu frá Felix Erni Frið­riks­syni en gestunum tókst að bjarga á línu. Aftur voru þeir ná­lægt því að koma boltanum í netið þegar Her­mann Þór Ragnars­son átti skalla úr teig en Anton Ari Einars­son gerði vel í að verja boltann sem stefndi upp í sam­skeytin.

Blikar fóru að færa sig framar á völlinn eftir því sem leið á og áttu fínan kafla eftir rúm­lega hálf­tíma leik. Nokkrum mínútum eftir að gestirnir höfðu sótt hart að marki heima­manna kom hins vegar fyrsta markið. Felix Örn Frið­riks­son átti þá frá­bæra sendingu inn í teig á Sverri Pál Hjalte­sted. Anton Ari varði vel en boltinn barst út á Hall­dór Jón Sigurð Þórðar­son sem skoraði af stuttu færi þegar fimm mínútur voru til loka fyrri hálf­leiks.

Kópa­vogs­búar voru ná­lægt því að jafna leikinn mínútum síðar þegar Pat­rik Johannesen átti skalla að marki en Jón Kristinn Elías­son náði með herkjum að blaka boltanum yfir. Jöfnunar­markið kom þó áður en flautað var til hálf­leiks. Jón Inga­son braut af sér vinstra megin við eigin teig og í stað þess að koma sér í stöðu á­kvað hann að malda í móinn. Jason Daði Svan­þórs­son tók spyrnuna strax, fann Viktor Karl Einars­son sem sendi á Höskuld Gunn­laugs­son inni í teig ÍBV sem átti ekki erfitt með að koma boltanum í netið með höfðinu. Staðan jöfn á ný og flautað var til hálf­leiks um leið og Eyja­menn tóku miðjuna.

Breiða­blik hóf síðari hálf­leikinn eins og þeir enduðu þann fyrri en þétt vörn ÍBV gaf fá færi á sér. Damir Mu­min­o­vic átti skalla eftir horn­spyrnu Höskuldar eftir klukku­stundar leik en boltinn hár­fínt fram hjá stönginni fjær. Eftir fjörugan fyrri hálf­leik voru síðari fjöru­tíu og fimm mínúturnar ekki jafn líf­legar hvað varðar færa­sköpun og spila­mennsku. Hart var tekist á og þrátt fyrir á­lit­legar sóknir höfðu mark­menn liðanna tak­markað að gera.

Þegar tíu mínútur voru eftir hefðu, og áttu, heima­menn að komast yfir. Felix Örn fékk boltann vinstra megin í teig Blika og átti skot að marki. Boltinn virtist ætla að læðast í hornið fjær þegar Breki Ómars­son, ný­kominn inn sem vara­maður, rekur tánna í boltann og setur hann yfir markið. Breka til varnar var Viktor Örn Margeirs­son mættur niður á línu en færið það gott að boltinn hefði átt að enda í netinu.

Í netið fór hann loks, djúpt í upp­bóta­tíma, úr víta­spyrnu eftir að hendi var dæmd á Breiða­blik. Sverrir Páll rak boltann upp að enda­línu og átti fyrir­gjöf sem hafnaði í hönd Viktors Arnar og víta­spyrna dæmd. Eiður Aron Sigur­björns­son, fyrir­liði ÍBV, fór á punktinn og skoraði af öryggi fram hjá Antoni Ara sem skutlaði sér í gagn­stætt horn.

Skömmu síðar var flautað til leiks­loka og frækinn sigur Eyja­manna á Breiða­blik stað­reynd. ÍBV að sækja sínu fyrstu þrjú stig en Blikar þar með búnir að tapa tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í Bestu deildinni.

Af hverju vann ÍBV?

Þrátt fyrir ó­hag­stæð úr­slit það sem af er sumars er ÍBV í Eyjum alltaf ÍBV í Eyjum. Þær mættu gestunum með krafti og, þrátt fyrir að sitja neðar á vellinum, sköpuðu þeir fleiri mark­tæki­færi, sér í lagi í fyrri hálf­leik. Föstu leik­at­riðin vógu mikinn í sóknar­leik heima­manna og stóðust þeir á­rásir Blika að undan­skildu jöfnunar­markinu.

Hverjir stóðu upp úr?

Sverrir Páll Hjalte­sted var góður í liði heima­manna. Vann vel upp á topp og elti hvern einasta bolta. Þrátt fyrir tak­mörkuð færi á hann skotið sem Anton Ari ver áður en Hall­dór Jón skorar og vinnur víta­spyrnuna í upp­bóta­tíma. Eiður Aron spilaði vel að venju og sýndi stál­taugar þegar hann setti boltann í netið úr víta­spyrnunni.

Hvað gekk illa?

Frá­bær­lega mannað lið Blika átti erfitt með að skapa sér al­vöru mark­tæki­færi gegn vörn ÍBV sem leyfði sér að liggja mjög aftar­lega. Jason Daði og Ágúst Hlyns­son hafa verið meira á­berandi en þeir voru í þessum leik og sama má segja um flesta leik­menn Breiða­bliks.

Hvað gerist næst?

Eyja­menn gera sér leið til Kefla­víkur á laugar­daginn næst­komandi en degi fyrr fá Blikar Fram í heim­sókn.

Her­mann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV: Því­líkt kredit á þessa stráka

Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, alltaf líflegur.Vísir/Hulda Margrét

Eyja­menn þurftu að bíða lengi eftir fyrstu þremur stigunum síðasta sumar en Her­mann Hreiðars­son, þjálfari ÍBV, var himin­lifandi með að ná þeim inn snemma í ár gegn Ís­lands­meisturunum.

,,Þetta var frá­bær leikur í heildina. Hugar­farið, bar­áttan og lið­sandinn stór­kost­legur. Því­líkt kredit á þessa stráka í klefanum eftir þunga byrjun. Það er aldrei gefin tomma eftir og menn beygjast ekki né bogna. Það er bara næsti leikur og á móti sterku Blikaliði og að vera þetta öflugir í níu­tíu mínútur þarf karakter og þeir sýndu hann svo sannar­lega.”

,,Komnir á Há­steins­völl og það er gott að spila hérna heima. Við vitum að hverju við göngum. Eftir að ferðast í alla leiki er gott að mæta aftur heim á Há­steins­völl og byrja á sigri. Það sýnir karakterinn, eins og í fyrra, eftir engan sigur­leik fyrr en eftir tólf leiki.

Við gefumst aldrei upp. Þetta var svaka­lega öflugur leikur. Við fengum svo­lítið af færum en það var högg að fá á sig þetta mark miðað við gang leiksins. Við áttum þetta skilið á endanum.”

Mikið hefur verið rætt um breidd Eyja­manna, eða skort á henni. Sam­kvæmt Her­manni er verið að leitast eftir mann­skap.

,,Við vitum að við erum ekki stærsti hópurinn. Það er verið að vinna í því. Eitt­hvað hefur ekki gengið upp og klikkað en það er ekki búið að loka glugganum. Við vitum að hverju við göngum, leik­mönnunum sem við höfum, og ég treysti þeim. Ó­heppi­legt að leik­menn í sömu stöðu séu allir frá í einu. Það er hægt að babbla eitt­hvað um þetta.”

,,Við erum alltaf bjartir í Eyjum,” sagði Her­mann um fram­haldið. ,,Alltaf sól og sumar hér og það eru komnir tveir leikir í röð þar sem við sýnum okkar rétta and­lit og frá­bært hugar­far. Við vitum alveg hvað við höfum í höndunum.”

Óskar Hrafn: Fannst við ekki eiga skilið að tapa þessum leik

Óskar Hrafn, þjálfari BreiðabliksVísir/Diego

,,Ég er sam­mála. Við tökum mið af að­stæðum, vindinum og grasinu,” sagði Óskar Hrafn Þor­valds­son, þjálfari Breiða­bliks um að þetta hafi verið ó­hefð­bundinn fót­bolta­leikur. ,,Mér fannst við ekki eiga skilið að tapa þessum leik. Ein­beitingar­leysi á síðustu mínútunni. Ég veit ekki hvort þetta var víti, ég sá það ekki. Þeir segja að hann hafi fengið boltann í and­litið.”

,,Það vantaði að vera að­eins kraft­meiri og á­kvarðana­töku á síðasta þriðjung. Við sköpuðum fullt af góðum stöðum. Mér fannst seinni hálf­leikurinn að stærstum hluta vera ljómandi fínn hjá okkur þar til það kom á síðasta þriðjung. Þar fannst mér við eiga í vand­ræðum með að búa til færi úr stöðunum. 

Það vantar kannski eitt­hvað hungur en við vorum í tómum vand­ræðum í föstum leik­at­riðum. Þeir skapa sér ekki mikið en voru hættu­legir þar. Svona er þessi fót­bolti. Við erum búnir að kasta frá okkur jafn­teflum í tveimur leikjum sem er eitt­hvað sem við þurfum að skoða.”

Tveir tap­leikir gegn liðum sem liggja

,,Það er erfitt að brjóta ÍBV á bak aftur, ég held að allir viti það. ÍBV er með gott lið og eru sterkir á heima­velli. Þetta var alltaf að fara að vera erfiður leikur. Mér fannst við spila þokka­lega miðað við að­stæður. Þeir eru með öfluga varnar­menn og eru sterkir inni í teig. Vinna vel og leggja sig fram. Við eigum að vera færir um það að finna leiðir fram hjá þeim eins og öðrum en því miður sköpuðum við okkur ekki nógu mikið í dag,” sagði Óskar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira