Martínez: Barkley fer ekki fet Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. maí 2014 12:15 Ross Barkley spilaði frábærlega fyrir Everton á leiktíðinni. Vísir/Getty
Roberto Martínez, knattspyrnustjóri Everton, ætlar ekki að selja enska ungstirnið RossBarkley frá félaginu sama hversu vel hann stendur sig á HM í Brasilíu í sumar. Þessi tvítugi miðjumaður blómstraði undir stjórn Martínez á tímabilinu og er í landsliðshópi Englands sem fer á HM í Brasilíu í næsta mánuði. Fastlega má búast við að hann heilli enn fleiri þar og stærri lið fari að sækjast eftir kröftum hans. „Nei, nei, því það yrði rangur kostur hjá honum að fara núna,“ sagði Martínez við blaðamenn aðspurður um orðróma þess efnis að Barkley gæti mögulega verið seldur til hæstbjóðanda í sumar. „Ross er ofurstjarna nú þegar í okkar augum og ekkert mun breyta þeirri skoðun. Hann verður samt í stöðu í sumar til að heilla milljónir manna, ekki bara Englendinga. Þannig mót er HM.“ „Ross mun samt ekki líta á þetta sem sýningarglugga fyrir sjálfan sig. Hann mun bara reyna að standa sig fyrir England. Hann mun koma til baka með sama hugarfar og hann fór með,“ segir Martínez sem ítrekar að það verði að vernda svona hæfileikaríka pilta. „Ross er ótrúlegum hæfileikum gæddur og er líklega besti ungi enski leikmaður sem ég hef séð. En hann er ekki fullmótaður þannig við þurfum að fara varlega. Það er okkar að vernda hann og ég veit að Everton er rétti staðurinn fyrir hann næsta árið,“ segir Roberto Martínez.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Sjá meira