Erlent

Um 120 grindhvalir drápust við Nýja Sjáland

Það tókst að bjarga um 40 hvölum við Suðurey.
Það tókst að bjarga um 40 hvölum við Suðurey.
Minnst 120 grindhvalir drápust á tveimur sólarhringum á Nýja Sjálandi um helgina. Yfir 100 hvalir strönduðu við Suðurey Nýja Sjálands á laugardaginn, en aðrir 20 drápust við Norðurey.

Breska blaðið The Times segir að þótt algengt sé að hvalir strandi við Nýja Sjáland sé óvenjulegt að slíkir atburðir gerist tvisvar með svo stuttu millibili. Sérfræðingar telja að ein kelfd kú í hópi 63 hvala hafi rekið hópinn upp að Suðureynni. Íbúum og ferðamönnum tókst að bjarga um 2/3 hluta af hópnum sem rak upp að Suðureynni.

Talið er að kefld kýr sem hafi verið komin að því að bera hafi rekið hópinn að stönd Suðureynnar. Kýrin bar skömmu eftir að henni hafi verið komið aftur fyrir á dýpi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×