Erikson sá við Ferguson - United enn án sigurs 19. ágúst 2007 12:03 Wes Brown fékk gula spjaldið í fyrri hálfleik.
Nú var að ljúka leik Man City og Man United. City vann leikinn 1-0 með marki frá Geovanni. United er því enn án sigurs eftir þrjá leiki í Úrvalsdeildinni. Bein textalýsing var á leiknum hér á VísiByrjunarlið United: Van Der Sar, Brown, Evra, Ferdinand, Vidic, Carrick, Giggs, Nani, Hargreaves, Scholes og TevezByrjunarlið City: Schmeichel, Corluka, Dunne, Garrido, Richards, Elano, Geovanni, Hamann, Johnson, Petrov og Bojinov.1. mínúta - Clattenburg hefur flautað leikinn á. City byrjar með boltann.4. mínúta - Nani er einn á móti markmanni eftir snyrtilegt spil hjá United. Hann skýtur á nærstöng en Schmeichel varði vel. Dauðafæri.5. mínúta - Vidic á skalla að marki eftir hornspyrnu. Rétt framhjá.6. mínúta - Áfall fyrir City. Bojinov er borinn meiddur af velli. Hann virðist vera meiddur á hné.8. mínúta - Emile Mpenza kemur inná fyrir hinn meidda Bojinov.11. mínúta - United pressar City stíft og er mun meira með boltann.16. mínúta - Nani á gott skot eftir hraða sókn United. Schmeichel varði vel.19. mínúta - United á tvö horn. Í því seinna kom Schmeichel sér í vandræði með slöku úthlaupi. Leikmenn City náðu að bjarga á síðustu stundu.20. mínúta - Tevez er við það að komast einn í gegn en Micah Richards bjargar á síðustu stundu með góðri tæklingu.23. mínúta - Nani á hælspyrnu sem losar Evra einan í gegn. Hann er tæklaður aftan frá en fær ekkert dæmt. Markspyrna dæmd.25. mínúta - Tevez er aftur við það að komast einn í gegn. Micah Richards bjargar enn á síðustu stundu. Markið liggur í loftinu hjá United.29. mínúta - Fyrsta marktilraun City. Johnson á máttlítið skot af 30 metra færi.31. mínúta - Mark! Geovanni skorar með skoti rétt fyrir utan vítateig. Boltinn hafði viðkomu í Vidic og Van Der Sar kom engum vörnum við.39. mínúta - City hafa eflst mjög eftir markið. Þeir leika boltanum af milli sín af miklu öryggi á meðan United berjast fyrir því að komast aftur inn í leikinn.45. mínúta - Hálfleikur. United hefur verið betri aðilinn í fyrri hálfleik en mark City sló þá greinilega út af laginu.47. mínúta - Vidic á skalla í slá eftir hornspyrnu. Frákastið fellur til Paul Scholes en hann bombar boltanum framhjá.54. mínúta - Giggs kemst einn í gegn. Hann sendir boltann fyrir en Micah Richards nær á ótrúlegan hátt að hreinsa í horn.59. mínúta - Scholes á skot rétt yfir. Ferguson setur Eagles inn á fyrir Nani.60. mínúta - Tevez setur boltann nokkrum sentímetrum framhjá stönginni eftir fyrirgjöf frá Scholes. Heppnin er búinn að leik við Scmeichel í marki City í dag.62. mínúta - Bianchi kemur inn á fyrir Elano66. mínúta - Aukaspyrna dæmd á Hargreaves rétt fyrir utan teig. Geovanni skýtur að marki en Van Der Sar ver örugglega.73. mínúta - Ferguson er að missa þolinmæðina. Hver sókninn á fætur annari strandar á vörn City. Michael Ball kemur inn á fyrir markaskorarann Geovanni. En O´Shea og Frazier Campbell koma inn á fyrir Wes Brown og Michael Carrick.75. mínúta - Tevez á skot rétt framhjá eftir misheppnaða hreinsun hjá Micah Richards.90. mínúta - Tevez skallar framhjá í dauðafæri. Hvernig fór maðurinn að þessu?!!!??!!91. mínúta - Horn. Van Der Sar fer fram og freistar þess að skora. City hreinsar og reyna að skora frá miðju. Petrov skýtur framhjá.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira