Bannar hermönnum að tjá sig um fangavist 10. apríl 2007 06:00 Á flugvellinum í Íran. Bresku fangarnir fimmtán eftir að Íranar höfðu ákveðið að láta þá lausa.fréttablaðið/AP
Varnarmálaráðherra Bretlands, Des Browne, lagði í gær bann við því að breskir hermenn seldu fjölmiðlum sögur af störfum sínum. Þetta var gert eftir að ráðuneytið var gagnrýnt harðlega fyrir að leyfa sjóliðunum fimmtán sem voru í haldi Írana í tvær vikur að ræða við fjölmiðla um reynslu sína gegn greiðslu. Tveimur þeirra tókst að gera það áður en það var bannað í gær. Browne sagði að það hefði ekki skilað tilætluðum árangri að leyfa hermönnunum að tjá sig, en það var gert vegna þess að talið var að hægt væri að hafa betri hemil á fréttaflutningnum fengju sjóliðarnir að segja sögu sína sjálfir. Bresku dagblöðin Sun og Daily Mirror birtu í gær viðtöl við tvo af bresku sjóliðunum. Faye Turney, 25 ára liðsforingi og eina konan í hópi fanganna, segist í viðtalinu hafa staðið í þeirri trú að fjórtán félagar hennar hefðu verið sendir heim og hún væri ein eftir í haldi Írana. Hún segist hafa fengið klukkutíma til að hugsa sig um hvort hún vildi gera skriflega játningu, að öðrum kosti yrði hún kærð fyrir njósnir og þyrfti að dúsa í fangelsi árum saman. Miklar deilur spruttu vegna ákvörðunarinnar um að heimila sjóliðunum að segja sögu sína. „Ég tel það óheppilegt að varnarmálaráðuneyti skuli nota sjómennina og sjóliðana með þessum hætti,“ segir Patrick Cordingley, fyrrverandi herforingi. „Ráðuneytið notar þá nánast sem áróðurstæki og það virðist vera að hvetja okkur til að pirra okkur á Íran frekar en að halda áfram viðræðum.“ Hvorki fjölmiðlarnir né hermennirnir hafa gefið upp hve háar greiðslur þeir fengu fyrir að segja sögu sína, en Turney segist ekki hafa tekið hæsta tilboðinu.
Mest lesið Sinueldur við Elliðavatn Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Erlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Sjá meira
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent