Varamarkvörður Bournemouth í dag spilaði með Hetti fyrir þremur árum Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. nóvember 2015 16:45 Ryan Allsop er skráður Íslandsvinur. vísir/getty
Ryan Allsop, fyrrverandi markvörður Hattar á Egilsstöðum, er á varamannabekk nýliða Bournemouth sem etja þessa stundina kappi við Southampton í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni. Allsop spilaði fyrstu átta leikina með Hetti sumarið 2012 þegar Egilsstaðarliðið var nýliði í 1. deildinni, en Allsop var lang besti markvörður deildarinnar þann tíma sem hann spilaði í henni. Með Englendinginn í markinu safnaði Höttur 10 af 21 stigi sínu og fékk aðeins á sig að meðaltali 0,75 mörk í leik (6 í 8 leikjum). Eftir að Allsop fór spiluðu þrír aðrir í marki Hattar í leikjunum fjórtán sem eftir voru og fékk liðið þá 2,35 mörk á sig að meðaltali í leik. Höttur féll á endanum úr deildinni. Eftir tímabilið með Hetti spilaði Allsop með Leyton Orient en var svo fenginn til Bournemouth. Hann spilaði 20 leiki með liðinu í B-deildinni 2013/2014 áður en hann var svo lánaður til Coventry í C-deildina í fyrra. Allsop er þriðji markvörður Bournemouth á eftir Pólverjanum Artur Boruc, sem er meiddur, og Ástralanum Adam Federici sem stendur vaktina í marki nýliðanna í dag.
Enski boltinn Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira