Koné með þrennu í stórsigri Everton | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. nóvember 2015 15:15 Maður leiksins, Arouna Koné. vísir/getty
Arouna Koné skoraði þrennu þegar Everton vann 6-2 sigur á Sunderland í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Eins og lokatölurnar gefa til kynna var leikurinn bráðfjörugur og mörkunum hreinlega rigndi inn. Spánverjinn Gerard Deulofeu átti frábæran leik í dag og hann kom Everton yfir á 19. mínútu þegar hann slapp í gegnum vörn Sunderland eftir sendingu Koné sem kom heimamönnum svo í 2-0 á 31. mínútu. En Sunderland, sem vann 3-0 sigur á Newcastle í síðustu umferð, gafst ekki upp og Jermain Defoe minnkaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Félagi hans í framlínunni, Skotinn Steven Fletcher, jafnaði svo metin á 50. mínútu. Þá fóru Everton-menn aftur í gang og þeir komust yfir á ný á 55. mínútu þegar varnarmaðurinn Sebastian Coates setti boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf Deulofeu. Fimm mínútum síðar lagði Deulofeu upp annað mark fyrir Romelu Lukaku og staðan orðin 4-2. Og aðeins tveimur mínútum seinna skoraði Koné fimmta markið og Everton því búið að skora þrjú mörk á sjö mínútum. Það var svo Koné sem átti lokaorðið þegar hann skallaði frábæra fyrirgjöf Lukaku í netið á 76. mínútu. Þetta er í fyrsta sinn síðan í nóvember 2007 sem Everton skorar sex mörk eða meira í leik en það gerðist einmitt síðast í 7-1 sigri á Sunderland. Með sigrinum komst Everton upp í 8. sæti úrvalsdeildarinnar en þetta var fyrsti sigur liðsins í fjórum leikjum. Sunderland er hins vegar í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar og ljóst er að Sam Allardyce bíður erfitt verkefni að halda liðinu uppi.Everton 1-0 Sunderland Everton 2-0 Sunderland Everton 2-1 Sunderland Steven Fletcher jafnar í 2-2: Romelu Lukaku kemur Everton í 3-2: Lukaku skorar annað mark sitt og kemur Everton í 4-2: Arouna Koné kemur Everton í 5-2: Koné fullkomnar þrennuna og Everton kemst í 6-2:
Enski boltinn Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport „Meiri möguleikar fyrir mig til þess að sýna mig í Evrópu“ Fótbolti Átök Arnars og Óskars hófust í yngri flokkum: Dramatík í úrslitum á Akureyri Íslenski boltinn Leverkusen að kaupa leikmann Liverpool fyrir metverð Fótbolti Tíu ára kylfingur fór holu í höggi á Íslandsmóti Golf Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Enski boltinn Fiorentina muni ekki kaupa Albert en önnur ítölsk lið áhugasöm Fótbolti Pacers knúðu fram oddaleik Körfubolti Sjáðu þáttinn um TM-mótið: Stuðhundur, afi þjálfari og flottar fléttur Fótbolti Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Sjá meira