Enski boltinn

Southampton komið upp í 7. sætið | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pellé skallar boltann í netið og kemur Southampton í 2-0.
Pellé skallar boltann í netið og kemur Southampton í 2-0. vísir/getty
Southampton bar sigurorð af Bournemouth með tveimur mörkum gegn engu í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Þetta var þriðji sigur Southampton í síðustu fimm leikjum en liðið hefur ekki tapað síðan 20. september.

Dýrlingarnir eru komnir upp í 7. sæti deildarinnar en Bournemouth er í öllu verri málum. Lærisveinar Eddie Howe hafa tapað þremur leikjum í röð og eru í 17. sæti, aðeins stigi frá fallsæti.

Steven Davis og Graziano Pellé skoruðu mörk Southampton í fyrri hálfleik en sá síðarnefndi er kominn með sex mörk í deildinni.

Victor Wanyama, miðjumaður Southampton, var rekinn af velli á 78. mínútu þegar hann fékk að líta sitt annað gula spjald. Það kom þó ekki að sök.

Southampton 1-0 Bournemouth Southampton 2-0 Bournemouth



Fleiri fréttir

Sjá meira


×