Erlent

Sýkti sjálfan sig af magasári

Vísindamenn á sviði ljósfræða hrepptu nóbelsverðlaunin í eðlisfræði sem afhent voru í gær. Í fyrradag fengu tveir Ástralir læknisfræðiverðlaunin fyrir að sýna fram á að bakteríur valda magasári. Bandaríkjamennirnir John L. Hall og Roy J. Glauber deila nóbelsverðlaununum í eðlisfræði þetta árið með Þjóðverjanum Theodor W. Haensch en á grundvelli uppgötvana þeirra á sviði ljósfræða er talið að hægt verði að stórbæta fjarskiptatækni, til dæmis ljósleiðaratækni. Á mánudaginn fengu svo Ástralarnir Robin Warren og -Barry Marshall nóbelsverðlaunin í læknisfræði en þeir sýndu fram á að bakteríur valda magasári. Áður var talið að sýrustig magans væri svo lágt að engar bakteríur gætu þar þrifist heldur stafaði magasár af streitu og óheilbrigðu líferni. Marshall innbyrti hins vegar bakteríur og fékk í kjölfarið magasár og önnur iðramein og með frekari rannsóknum gátu þeir félagar sannað að örverur yllu veikinni og hana væri hægt að lækna með lyfjum. Uppgötvunin er af mörgum talin ein sú merkasta í meinafræði á síðustu áratugum. Verðlaunin í hvorri grein nema tíu milljónum sænskra króna, eða um 78 milljónum íslenskra króna, og skipta verðlaunahafarnir -þeirri upphæð á milli sín.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×