Þrýst á Schröder að draga sig í hlé 4. október 2005 00:01
Kristilegir demókratar í Þýskalandi, undir forystu Angelu Merkel, þrýstu í gær á Gerhard Schröder, fráfarandi kanslara, að falla frá kröfu um að fara sjálfur fyrir næstu ríkisstjórn. Kristilegi demókrataflokkurinn vann eitt þingsæti á Sambandsþinginu til viðbótar fram yfir jafnaðarmenn í kosningum sem fram fóru á sunnudag í kjördæmi í Dresden. Þar höfðu kosningarnar frestast um tvær vikur vegna fráfalls eins frambjóðandans. Endanleg skipting þingsæta réðst ekki fyrr en eftir að búið var að telja upp úr kjörkössum þessa síðasta af kjördæmunum 299. Niðurstaðan varð sú að CDU hefur, ásamt systurflokknum CSU, nú fjórum fulltrúum fleiri á Sambandsþinginu en Jafnaðarmannaflokkur Schröders, 226 á móti 222. Þessi niðurstaða hefur styrkt tilkall Merkel til forystu í hugsanlegri samsteypustjórn stóru flokkanna og ýtt undir vonir hennar flokksmanna um að Schröder falli frá kröfu sinni um að halda kanslarastólnum ef til slíks stjórnarsamstarfs kæmi. ?Þetta eru mjög góð úrslit fyrir CDU,? sagði Merkel þar sem hún var viðstödd hátíðardagskrá í Potsdam í tilefni af sameiningardeginum sem var í gær. Þann 3. október 1990 gekk sameining þýsku ríkjanna tveggja í gildi og þess var minnst með margvíslegum hætti í landinu. ?Ég reiði mig nú á skynsemisöfl í SPD,? sagði Merkel og annar þekktur forystumaður í þingflokki kristilegra, Günter Beckstein, hvatti Schröder til að nýta sameiningardaginn til að draga sig í hlé. Fulltrúar beggja stóru flokkanna hafa átt tvo þreifingarviðræðufundi og sá þriðji er áformaður á morgun. Franz Müntefering, formaður SPD, gaf í skyn að þar á bæ væru menn að hneigjast til meiri sveigjanleika. ?Við teljum að Gerhard Schröder eigi að vera kanslari, en alla möguleika um forystufyrirkomulag verður að ræða í komandi viðræðum,? sagði hann.
Erlent Fréttir Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Bílvelta á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent