ESB-viðræður við Tyrki hafnar 4. október 2005 00:01
Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins komust eftir maraþonfund í Lúxemborg gær að samkomulagi um orðalag samningsumboðs sambandsins fyrir aðildarviðræður við Tyrkland, sem áformað hafði verið að hæfust formlega í gær. Eftir að hafa skoðað niðurstöðuna féllust Tyrkir á að ganga til viðræðnanna undir þeim skilyrðum sem kveðið er á um í samningsumboðinu. Utanríkisráðherrann Abdullah Gül hélt því ásamt tyrknesku samninganefndinni til Lúxemborgar í gærkvöld. Strax eftir komuna þangað átti hin formlega opnunarathöfn aðildarviðræðnanna að fara fram, með hátt í hálfs sólarhrings seinkun. Um fjórir áratugir eru síðan Tyrkir hófu fyrst að knýja dyra hjá Evrópusambandinu og í desember í fyrra ákváðu leiðtogar þess að aðildarviðræður skyldu hefjast hinn 3. október í ár. Hið áformaða upphaf viðræðnanna komst í uppnám er ríkisstjórn Austurríkis krafðist þess að samningsumboðið yrði ekki afgreitt nema þess yrði getið að Tyrklandi kynni að verða boðin önnur lausn á tengslum við sambandið en full aðild. Tyrklandsstjórn hafði aftur á móti sagt að hún áliti ekkert minna en fulla aðild koma til greina. Utanríkisráðherrar ESB-ríkjanna 25 sátu á rökstólum í Lúxemborg fram á nótt á sunnudag og allan gærdaginn til að reyna að fá Austurríkismenn til að gefa eftir. Þegar komið var undir kvöld í gær féllst loks austurríski ráðherrann, Ursula Plassnik, á það og samningsumboðsskjalið var sent til Ankara. Erindrekar ESB-ríkja sögðu að Plassnik hefði loks látið undan og fallist á að í samningsumboðinu stæði að „sameiginlegt markmið viðræðnanna væri innganga“ Tyrklands í sambandið. Reiknað er með að aðildarviðræður við Tyrki taki að minnsta kosti tíu ár, enda langt í land með að landið uppfylli aðildarskilyrðin, bæði efnahagslega og hvað varðar réttarríki og staðla borgaralegs samfélags. Íbúar Tyrklands eru um 70 milljónir, flestir múslimar.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Sjá meira