Erlent

Samvinna Rússa og Breta í hættu

Alexander Grushko vara-utanríkisráðherra Rússlands segir að deilur Rússa við Breta kunni að stefna í hættu samvinnu ríkjanna í baráttunni gegn hryðjuverkum. Bretar ráku fjóra stjórnarerindra Rússlands úr landi fyrr í vikunni vegna þess að Rússar höfðu ekki orðið við óskum Breta um að framselja Andrei Lugovoi, fyrrverandi KGB njósnara, sem er grunaður um að hafa byrlað Alexander Litvinenko geislavirkt eiturefni í nóvember síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×