Erlent

Höfundurinn gagnrýndur

Dick marty
Dick marty

 Svissneski Evrópuþingmaðurinn Dick Marty, sem hefur rannsakað í hálft annað ár leynileg fangelsi og leynilegt fangaflug á vegum CIA í Evrópulöndum, var í gær gagnrýndur á Evrópuþinginu fyrir að nota nafnlausar heimildir fyrir ásakanir sínar á hendur nafngreindum stjórnmálamönnum í Rúmeníu og Póllandi.



Marty svaraði því til að heimildarmenn sínir væru sumir hverjir opinberir embættismenn sem gætu aðeins tjáð sig í skjóli nafnleyndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×