Erlent

Segir ákveðin tækifæri í stöðunni

Shimon Peres, forseti Ísraels, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddust við um pólitíska ástandið í Jerúsalem í gær.
Shimon Peres, forseti Ísraels, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddust við um pólitíska ástandið í Jerúsalem í gær. fréttablaðið/auðunn arnórsson

Eftir viðræður við Shimon Peres, forseta Ísraels, og Tzipi Livni, utanríkisráðherra og varaforsætisráðherra Ísraels, í Jerúsalem í gær segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að það séu „ákveðin tækifæri“ í stöðunni í deilu Ísraela og Palestínumanna „þótt það kannski líti ekki þannig út“.



Formleg dagskrá vinnuheimsóknar Ingibjargar Sólrúnar til Ísraels hófst í gær með heimsókn í helfararminningarsafnið Yad Vashem, en á mánudag fór hún í skoðunarferð að landamærum Ísraels að Líbanon og Sýrlandi.

Ingibjörg var fyrsti erlendi ráðamaðurinn sem átti fund með Peres eftir að hann tók við embætti forseta á sunnudaginn og sýndu ísraelskir fjölmiðlar fundinum því talsverðan áhuga. Um fundinn sagði Ingibjörg að það að hitta Peres væri eins og að ganga á vit sögunnar. „Hann hefur verið á hinu pólitíska sviði í 60 ár, eða jafnlengi og Ísraelsríki hefur verið til. Að hitta slíkan mann er auðvitað mjög merkilegt og fá að heyra hans hliðar á málunum.“



Í samtali við Fréttablaðið að loknum fundunum með Peres og Livni sagði Ingibjörg að erindi hennar á þessar slóðir væri að „átta sig á þessum flóknu málum sem hér er um að ræða“. Hún minnti á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segði að hún muni beita sér fyrir friði og mannréttindum í Miðausturlöndum, og því væri hún að framfylgja með heimsókninni.

Í viðræðum gærdagsins hefði hún fengið að heyra hvernig þessi mál horfðu við ísraelskum stjórnvöldum. Hina hliðina fengi hún síðar í vikunni á fundum með leiðtogum Palestínumanna.



„Þetta hafa verið mjög gagnlegar viðræður. Maður fær miklu skýrari heildarmynd af þeim flóknu úrlausnaratriðum sem hér er að fást við,“ segir Ingibjörg. Hún hafi lært að í stöðunni séu ákveðin tækifæri, „þótt það kannski líti ekki þannig út“.



Um fundinn með Livni segir Ingibjörg aðspurð að sér finnist það tvímælalaust skipta máli að þær séu báðar konur. „Það skiptir verulegu máli í okkar samræðum. Það gerir þær auðveldari, opinskáari, hreinskiptnari en þær kannski ella væru.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×