Erlent

Siglir yfir haf á íspinnaskipi

Hollenskur skipasmiður hefur smíðað víkingaskip úr endurunnum íspinnum einum saman. Verkið tók fjögur ár. Fimm þúsund skólabörn hjálpuðu til og í haust hyggst hann sigla yfir Atlantshafið á fleyinu.



Skipið, sem smiðurinn kallar „Thor“, er í fullri stærð og hefur þegar farið sína jómfrúarferð á stöðuvatni. „Þetta er ekki aðeins skip úr íspinnum, heldur einnig stærsti endurunni hlutur heims,“ sagði smiðurinn Robert McDonald, sem slasaðist alvarlega níu ára gamall og missti foreldra sína og níu systkin í gassprengingu.



„Ég gerði þetta til að sýna krökkunum að allt er mögulegt,“ sagði McDonald. Þetta kom fram á vefvarpsstöðinni ITV.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×