Aston Villa heldur fullkominni byrjun sinni áfram eftir dramatískan sigur

Barkley fagnar með liðsfélögunum í kvöld.
Barkley fagnar með liðsfélögunum í kvöld. getty/Jon Super

Sjálfstraustið gæti varla verið meira hjá Aston Villa en liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið. Nú í kvöld vann Villa góðan sigur á Leicester á útivelli eftir sigurmark í uppbótartíma.

Leikurinn var fjörugur og bæði lið sköpuðu sér nóg af færum og skyndisóknum. Aston Villa var ívið meira með boltann en bæði lið áttu átta marktilraunir í leiknum.

Það var þó ekki fyrr en í uppbótartíma sem Ross Barkley tryggði Villa sigurinn með góðu skoti fyrir utan teig sem Kasper Schmeichel náði ekki að verja. Lokatölur 1-0 fyrir Villa sem hafa unnið alla fjóra leiki sína í deildinni hingað til eftir að hafa rétt sloppið við fall í fyrra.

Aston Villa fer upp í annað sætið með sigrinum, einu stigi á eftir Everton en Villa á leik til góða. Þetta var annað tap Leicester í röð en liðið er í fjórða sæti með níu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira