Leedsarar ættu að setja kampavínið í kæli

Leeds vann Barnsley í dag og er á barmi þess að komast aftur í ensku úrvalsdeildina.
Leeds vann Barnsley í dag og er á barmi þess að komast aftur í ensku úrvalsdeildina. mynd/@lufc

Leeds United þarf aðeins eitt stig úr síðustu tveimur leikjum sínum á tímabilinu til að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta að nýju eftir sextán ára bið.

Leeds vann í dag Barnsley 1-0. Eina markið var sjálfsmark Michael Sollbauer um miðjan fyrri hálfleik.

Leeds er því með 87 stig á toppi B-deildarinnar, fimm stigum á undan WBA og sex stigum á undan Brentford en tvö efstu liðin komast upp í úrvalsdeildina.

Úrvalsdeildarsæti Leeds gæti orðið tryggt á morgun ef að WBA vinnur ekki Huddersfield á útivelli, eða á laugardaginn ef Brentford vinnur ekki Stoke. Annars gefst Leeds möguleiki á að klára dæmið með því að ná í stig gegn Derby á útivelli á sunnudaginn. Lokaleikur Leeds er svo við Charlton á heimavelli 22. júlí.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira