Enski boltinn

Unglingaliðsmaður Manchester United sló 25 ára gamalt met

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Williams í leik með U16-ára landsliði Englands.
Williams í leik með U16-ára landsliði Englands. Vísir/Getty
RoShaun Williams, 15 ára unglingaliðsmaður hjá Manchester United, hefur slegið 25 ára gamalt skólamet Ólympíuverðlaunahafans Darren Campbell í 100 metra hlaupi.

Williams hljóp 100 metrana á 10,99 sekúndum í venjulegum íþróttatíma í Ashton-on-Mersey skólanum, sem hefur verið sérstakur íþróttaskóli síðan 1998. Manchester United er einn af aðalstyrktaraðilum skólans.

Williams, sem hefur verið á mála hjá Manchester United síðan hann var níu ára, hafði ekki hugmynd um að hann hefði slegið metið fyrr en kennari hans tilkynnti honum það.

Campbell setti gamla metið árið 1989, en hann kom þá í mark á 11,13 sekúndum.

Campbell átti farsælan feril sem spretthlaupari, en hann vann m.a. til gullverðlauna í 4x100m boðhlaupi á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004. Fjórum árum fyrr í Sydney vann Campbell til silfurverðlauna í 200m hlaupi. Hann vann auk þess til verðlauna á heims- og Evrópumeistaramótum og Samveldisleikunum.

Eftir að hafa frétt af afreki Williams sendi Campbell, sem hefur unnið með ýmsum fótboltaliðum (þ.á.m. Manchester United) síðan hann lagði hlaupaskóna á hilluna, frá sér myndband þar sem hann óskaði Williams til hamingju með að hafa slegið metið sitt.

Það athyglisverðasta er kannski að Williams hefur aldrei keppt í 100m hlaupi né æft það sérstaklega, en aðaláhersla hans er á fótboltann. Hann stefnir að því að komast í aðallið Manchester United, en aðalhetjan hans er Ryan Giggs, núverandi aðstoðarþjálfari United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×