Erlent

Obama biðst afsökunar á Kóran-brennu

Frá mótmælunum í dag.
Frá mótmælunum í dag. mynd/AP
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur beðið afgönsku þjóðina afsökunar eftir að bandarískir hermenn brenndu nokkur eintök af Kóraninum.

Hann heitir því að málið verði rannsakað.

Atvikið átti sér stað á herstöð Bandaríkjanna og NATO í Afganistan fyrr í þessari viku. Víða var mótmælt í landinu eftir að upp komst um athæfi hermannanna.

Talið er að níu hafi látist í mótmælunum, þar á meðal eru tveir bandarískir hermenn.

Um 400 mótmælendur söfnuðust saman við norska herstöð í Faryab í Afganistan. Í herstöðinni eru um 500 hermenn og óbreyttir borgarar frá ýmsum löndum - þar á meðal eru íslendingar staðsettir á herstöðinni.

Sendiherra Noregs í Afganistan sagði Reuters fréttastofunni að engan hafi sakað í mótmælunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×