Portúgalskur framherji á að fylla skarð Bony Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2014 14:00 Oliveira í leik með Rennes á síðustu leiktíð. vísir/afp
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í enska úrvalsdeildarliðinu Swansea City fengu góðan liðsstyrk í gær þegar portúgalski framherjinn Nélson Oliveira gerði lánssamning við félagið. Samningurinn tekur gildi 1. janúar og gildir til loka tímabilsins. Oliveira kemur frá Portúgalsmeisturum Benfica. Framherjinn hefur þó aðeins leikið 21 leik með aðalliði félagsins, en hann hefur verið lánaður til hinna ýmsu liða á undanförnum árum. Á síðustu leiktíð skoraði hann átta mörk í 36 leikjum með franska liðinu Rennes. Wilfried Bony, markahæsti leikmaður Swansea á tímabilinu, missir af nokkrum leikjum í janúar og febrúar vegna Afríkukeppninnar og Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea, hefur brugðist við því með því að fá Oliveira til velska liðsins sem er í 8. sæti úrvalsdeildarinnar með 25 stig eftir 17 umferðir. "Það er ástæðan fyrir því að fengum Nelson, sem er mjög góður leikmaður, til liðs við okkur. Ég hef fylgst náið með honum og er ánægður með félagaskiptin," sagði Monk og bætti við: "Það var mikilvægt að fá annan framherja með Bafetimbi Gomis til að fylla skarð Bonys." Oliveira, sem er 23 ára, hefur leikið 14 landsleiki fyrir Portúgal.BREAKING: #Swans complete loan signing of Portugal international Nelson Oliveira from Benfica. http://t.co/vy82hue0qk pic.twitter.com/1yTc0N6AkT— Swansea City FC (@SwansOfficial) December 23, 2014
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira