Peningar engin fyrirstaða fyrir Van Gaal Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2014 11:30
Samkvæmt frétt sem birtist á fréttavef BBC í morgun hefur Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, fengið þau skilaboð að hann megi eyða eins miklu og honum lystir í leikmenn næsta sumar. United eyddi 150 milljónum punda, um 29 milljörðum króna, í leikmenn síðastliðið sumar en er engu að síður ellefu stigum á eftir toppliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Samkvæmt fréttinni eru þeir Kevin Strootman, Mats Hummels og Diego Godin allir á óskalista Van Gaal en ólíklegt að þeir komi strax í janúar. Ed Woodward, framkvæmdastjóri United, sagði einnig nýverið ólíklegt að United myndi leita að skammtímalausnum þegar opnað verður fyrir félagskipti í janúar. Woodward sagði að félagið væri með ákveðna leikmenn í huga fyrir næsta sumar. „Ef einhver þeirra stendur okkar til boða í janúar munum við mögulega grípa til aðgerða. En líkurnar á því eru litlar.“ Van Gaal þarf að taka ákvörðun um framtíð nokkurra leikmanna United, svo sem Rafael, Phil Jones, Chris Smalling, Jonny Evans og Robin van Persie. Allir klára sína samninga við félagið vorið 2016. Hið sama má segja um markvörðinn David De Gea en forráðamenn hafa í hyggju að ræða við hann um nýjan samning fljótlega. Þá er búist við því að Michael Carrick verði boðinn nýr samningur en hann er bundinn félaginu til vorsins. Þá er talið nánast fullvíst að miðjumaðurinn Anderson fari frá félaginu en ekki fyrr en að samningur hans rennur út í sumar.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Íslenski boltinn Hadjar frá í aðra keppni Formúla 1 Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira