Lesblinda hefur áhrif á akstur 13. október 2005 15:31
Lesblinda hefur svipuð áhrif á aksturshæfileika fólks og áfengi. Ný rannsókn sýnir að viðbragðsflýtir lesblinds fólks í akstri er svipaður og þeirra sem eru fullir. Rannsókninni stýrði Íslendingurinn Hermundur Sigmundsson sem starfar við Tækniháskólann í Þrándheimi í Noregi. Hermundur lagði tvö mismunandi aksturspróf fyrir sautján manns en í hópnum voru sex lesblindir. Prófið fólst í því að kanna hversu fljótt fólkið brást við alls konar uppákomum í akstrinum, aðallega umferðaskiltum sem voru látin birtast hér og hvar. Í ljós kom að það tók lesblinda fólkið 20-30% lengri tíma en hina að sýna viðbrögð. Til samanburðar er talið að það hægist um 10% á viðbrögðum fólks sem hefur drukkið tvo stóra bjóra en þá er fólk að öllu jöfnu komið yfir leyfilegt hámark alkóhóls í blóði. Þá hefur einnig verið mælt að fólk sem talar í síma á meðan það keyrir missi allt að 45% af viðbragðsflýti sínum. Eins og vitað er er bæði ólöglegt að aka undir áhrifum áfengis og einnig að tala í farsíma og nú spyrja menn sig í kjölfarið á þessari rannsókn hvort lesblindum verði meinað að keyra bíl. Sérfræðingar segja vandséð að grípa þurfi til svo róttækra aðgerða, nóg sé að lesblindir viti af þessu vandamáli. Þá hefur Hermundur sjálfur sagt að gera þurfi viðameiri rannsókn til að staðfesta þessar niðurstöður. Það gæti í það minnsta dregið eitthvað úr alhæfingargildi rannsóknarinnar að Jackie Stewart, fyrrverandi heimsmeistari í kappakstri, er lesblindur.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Fleiri fréttir Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Sjá meira