Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Valur Páll Eiríksson skrifar 12. apríl 2026 17:25 Cherki var geggjaður í dag og átti stóran þátt í sigri City. Marc Atkins/Getty Images Manchester City vann 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið nálgast Arsenal í toppbaráttunni. Arsenal tapaði á heimavelli fyrir Bournemouth í gær sem veitir City boð í titilbaráttuna. City þáði boðið í dag þökk sé þremur mörkum í síðari hálfleik. Nico O‘Reilly kom City yfir með skallamarki eftir fyrirgjöf Rayans Cherki á 51 mínútu. Sex mínútum síðar tvöfaldaði Marc Guéhi, fyrrverandi varnarmaður Chelsea, og aftur var það eftir sendingu frá öflugum Rayan Cherki. Belginn Jérémy Doku skoraði þriðja markið á 68 mínútu og 3-0 sigur City staðreynd. Eftir sigurinn er Manchester City með 64 stig í öðru sæti deildarinnar, aðeins sex stigum frá toppliði Arsenal. City á leik til góða og getur því komist þremur stigum frá toppnum og þá mætast liðin tvö einnig næstu helgi innbyrðis á Etihad-vellinum í Manchester. Chelsea er með 48 stig í sjötta sæti, fjórum stigum á eftir Liverpool í fimmta sætinu, sem er Meistaradeildarsæti. Enski boltinn Chelsea FC Manchester City