Enski boltinn

Ekkert partí hjá Man. Utd heldur ræða frá stjóranum

Þegar Sir Alex Ferguson var stjóri hjá Man. Utd var oft mikið fjör í kringum jólin. Sérstaklega var mikið fjör þegar jólahádegismaturinn var framreiddur.

Þá bar Ferguson súpu í leikmenn sína klæddur í fyndinn búning. Unglingaleikmenn liðsins sáu síðan um skemmtiatriðin sem gengu aðallega út á að stríða stóru strákunum.

David Moyes vill ekki sjá svona fíflalæti. Í stað skemmtiatriðanna fengu leikmenn ræðu frá stjóranum. Hún ku ekki hafa verið jafn skemmtileg.

Man. Utd er í áttunda sæti deildarinnar og Moyes því í litlu jólaskapi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×