Hefur skorað meira en helmingur liða í deildinni | Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2013 21:28
Liverpool er komið á ógnarskrið í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur unnið síðustu þrjá leiki sína samanlagt með fjórtán mörkum gegn tveimur en í gær fóru þeir rauðklæddu illa með Tottenham í Lundúnum, 5-0. Líkast til er enginn að spila betur í ensku úrvalsdeildinni en Luis Suarez – sem hefur skorað átta mörk í þessum þremur leikjum og er kominn með sautján mörk alls á tímabilinu. Tíu lið, þar á meðal Tottenham, hafa ekki einu sinni náð að skora svo mörg mörk í deildinni í vetur og er þá frátalin sú staðreynd að Suarez var í banni í fyrstu fimm leikjum tímabilsins. „Ég reyni mitt besta á vellinum. Ég er sóknarmaður og reyni að skora. Það mikilvægasta er frammistaða liðsins. Við spiluðum mjög vel,“ sagði hógvær Luis Suarez en stjóri hans, Brendan Rodgers, vildi ekki gera mikið úr einstaklingsafreki Suarez eftir leikinn. Hann lofaði frekar liðið allt.„Við skoruðum fimm mörk en hefðum auðveldlega getað skorað sjö eða átta. Ég er ekki í vafa um að þetta sé besta heildarframmistaða liðsins síðan ég tók við,“ sagði Rodgers. Suarez og Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, hafa báðir skorað sautján deildarmörk á tímabilinu. Ronaldo er þó búinn að spila fleiri leiki (fimmtán) og skora fleiri mörk úr vítum (fjögur). Suarez hefur einmitt lengi vel verið orðaður við Real Madrid en það er ljóst að verðmiðinn á kappanum verður aðeins hærri með hverjum leiknum sem líður. Arsenal gaf eftir í toppbaráttunni um helgina með 6-3 tapi gegn Manchester City í ótrúlegum leik á laugardaginn. Liverpool og Chelsea náðu því að minnka forystu Lundúnaliðsins á toppnum í tvö stig en City og Everton fylgja á eftir í humátt. Manchester United kom sér svo á sigurbraut á ný með 3-0 útisigri á Aston Villa í gær þar sem Danny Welbeck skoraði tvö fyrstu mörk United.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Sjá meira