Erlent

Hvetur til friðar í Suður-Súdan

Að minnsta kosti þúsund manns hafa fallið í átökum frá því þau hófust fyrir um mánuði síðan.
Að minnsta kosti þúsund manns hafa fallið í átökum frá því þau hófust fyrir um mánuði síðan. Mynd/AP
Yfirmaður friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Suður-Súdan hvetur stríðandi fylkingar í landinu til þess að leggja niður vopn sín og hefja friðarviðræður.

Hilde Johnson, segir í samtali við fréttastofu BBC að ástandið í landinu fari síversnandi en að minnsta kosti þúsund manns hafa fallið í átökum frá því þau hófust fyrir um mánuði síðan.

Þeir sem deila eru stuðningsmenn sitjandi forseta Salva Kiir, og fyrrverandi varaforseta landsins Riek Machar. Til stendur að hefja friðarviðræður í Eþíópíu en uppreisnarmenn hafa hingað til neitað að semja um vopnahlé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×