Enski boltinn

„Stærra en þegar Liverpool vann Barcelona“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hinn 35 ára gamli Michael Wilde fagnar marki sínu fyrir Connah's Quay Nomads.
Hinn 35 ára gamli Michael Wilde fagnar marki sínu fyrir Connah's Quay Nomads. Getty/Matthew Ashton
KR og Breiðablik eru úr leik í Evrópudeildinni en velska liðið Connah's Quay Nomads er aftur á mótið komið áfram í aðra umferð keppninnar.

Connah's Quay Nomads sló í gær út skoska liðið Kilmarnock og fá að launum leiki á móti serbneska félaginu Partizan Belgrad í næstu umferð.

Connah's Quay Nomads tapaði fyrri leiknum 2-1 á heimavelli og það voru ekki margir sem sáu Kilmarnock klúðra þeirri forystu í Skotlandi.

Connah's Quay Nomads vann hins vegar 2-0 sigur á heimavelli Kilmarnock í gær og tryggði sér sæti í næstu umferð og um leið dágóða peningaupphæð.





Knattspyrnustjóri Connah's Quay Nomads var líka kátur og yfirlýsingaglaður eftir leikinn í gær.

„Þetta eru ein óvæntustu úrslitin í sögu Evrópudeildarinnar,“ lét Andy Morrison hafa eftir sér og hann var ekki hættur því Morrison bætti við: „Þetta er stærra en þegar Liverpool vann Barcelona,“  sagði Morrison í sigurvímu við BBC í Skotlandi.

Connah's Quay Nomads er ekki skipað atvinnumönnum og sex af leikmönnum liðsins þurfti að mæta í vinnu í morgun. Liðið skilaði sér heim til Wales um miðja nótt.

Andy Morrison var þarna að rifja upp 4-0 sigur Liverpool á Barcelona á Anfield í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð en Barcelona vann fyrri leikinn 3-0 og var að mati flestra nánast komið áfram eftir þau úrslit.

„Ég heyrði ýmislegt fyrir leikinn. Ég held að það hafi verið knattspyrnustjóri Queens' Park sem sagði að hann héldi að þeir myndu skora sex mörk á okkur og að það kæmi honum ekki á óvart að mörkin yrðu tíu,“ sagði Morrison við breska ríkisútvarpið í Skotland.

„Við vorum að senda mönnum eins og honum skilaboð. Þú afskrifar ekki lið með fullvöxnum karlmönnum. Fyrirliðinn minn er 37 ára og Michael Wilde er 35 ára en þeir eru mjög ljónshjörtu og hætta aldrei,“ sagði Morrison

„Þetta er stórkostlegt afrek hjá öllum mínum leikmönnum. Þeir komast ekki heim til sín fyrr en fimm um morguninn og sex af þeim þurfa að mæta í vinnu á morgun. Svo þurfum við að fara undirbúa okkur fyrir Serbíu í næstu viku,“ sagði Morrison.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×