Erlent

„Einhver með blóð á iljunum“ gekk um herbergið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skjáskot úr myndbandi sem sýnt var í dómsal í gær. Hér má sjá hinn grunaða og Millane í lyftu á leiðinni upp í íbúð þess fyrrnefnda.
Skjáskot úr myndbandi sem sýnt var í dómsal í gær. Hér má sjá hinn grunaða og Millane í lyftu á leiðinni upp í íbúð þess fyrrnefnda. Skjáskot/Twitter
Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt breska bakpokaferðalanginn Grace Millane reyndi að þrífa blóð af gólfi íbúðarinnar, þar sem Millane var myrt. Þetta kom fram við réttarhöld í málinu í nýsjálensku borginni Auckland í dag.

Ekki hefur verið hægt að staðfesta með algjörri vissu að blóðið hafi verið úr Millane. Sýnatökur sýna þó að það sé fimm hundruð milljón sinnum líklegra að blóðið hafi verið úr henni en nokkrum öðrum.

Sjá einnig: Myndbönd varpa ljósi á stefnumótið í aðdraganda morðsins

Millane, sem var 22 ára, hafði verið á ferð ein síns liðs um Nýja-Sjáland í tvær vikur er hún týndist þann 1. desember síðastliðinn. Lík hennar fannst viku síðar. 27 ára karlmaður, sem Millane kynntist á stefnumótaforritinu Tinder, er ákærður fyrir að hafa kyrkt hana í íbúð sinni og grafið líkið rétt fyrir utan borgarmörk Auckland.

Grace Millane var nýútskrifuð úr háskóla og var á ferðalagi um heiminn þegar hún var myrt.
Hann neitar sök og segir Millane hafa látist af slysförum við samfarir. Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur á grundvelli nýsjálenskra laga.

Þá kom einnig fram við réttarhöldin í dag að hinn grunaði hafi þegar sagt lögreglu frá blóðinu. Tveir stórir blóðblettir, sem hann er sagður hafa gert tilraun til að þrífa, fundust við rúm hans. Á myndum sem sýndar voru í dómsal sjást blettirnir greinilega með hjálp luminols, efnis sem iðulega er notað til að greina blóð á vettvangi glæpa.

Blóð, sem nær allar líkur eru á að hafi verið úr Millane, fannst einnig á ísskáp í íbúðinni. Þá sýndi rannsókn fram á að „einhver með blóð á iljunum“ hefði gengið um herbergið.

Engin fíkniefni fundust í blóði Millane við krufningu. Hún var þó með mikið áfengi í blóðinu en líkt og fram hefur komið fóru hún og hinn ákærði á stefnumót, þar sem þau drukku áfenga drykki, áður en hún var myrt.

Foreldrar Grace Millane mæta í dómsal í Auckland í gær.Getty/Phil Walter
Í gær var myndefni úr öryggismyndavélum sýnt í réttarsal. Upptökurnar fylgja Millane og manninum á stefnumótinu þar sem þau sjást flakka á milli bara. Að endingu má sjá þau fara heim til mannsins, fara inn í lyftu í anddyri hússins og stíga út úr henni á þriðju hæð, þar sem íbúð hans var.

Komið hefur fram að maðurinn hafi m.a. leitað að því á netinu hvernig best væri að „losa sig við lík“, eftir að hann á að hafa myrt Millane. Þá sló hann einnig inn leitarstrengina „fuglar sem éta hold“ og „eru hrægammar á Nýja-Sjálandi?“. Daginn eftir morðið fór maðurinn svo á Tinder-stefnumót með annarri konu. Lík Millane var þá í ferðatösku í íbúð hans. Hann er sakaður um að hafa grafið líkið í ferðatöskunni rétt fyrir utan borgarmörk Auckland.


Tengdar fréttir

„Dóttir ykkar hefði átt að vera örugg hér“

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, þurfti að halda aftur af tárunum þegar hún bað fjölskyldu Grace Millane afsökunar á því að hún hefði verið myrt á bakpokaferðalagi sínu um landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×