Erlent

Börn meðal 27 látinna þegar eldur kviknaði í heima­vistar­skóla

Eiður Þór Árnason skrifar
Hundruð íbúa á svæðinu söfnuðust saman fyrir utan skólann þegar sjúkrabílar komu á vettvang.
Hundruð íbúa á svæðinu söfnuðust saman fyrir utan skólann þegar sjúkrabílar komu á vettvang. Vísir/EPA
Minnst 27 létu lífið eftir að eldur kviknaði í gistirými heimavistarskóla í úthverfi Monróvíu, höfuðborg Líberíu í gærmorgun. Fjöldi þeirra voru börn sem stunduðu nám við skólann.

Talið er að eldurinn hafi brotist út snemma morguns á meðan nemendur og starfsfólk skólans sváfu. Moses Carter, talsmaður lögreglu á svæðinu hefur greint fjölmiðlum frá því að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni og að rannsókn á eldsupptökum haldi áfram.

Vitni að eldsvoðanum greindi fréttastofu breska ríkissjónvarpsins frá því að hann hafi vaknað við eldinn og kallað á aðstoð.

„Þegar ég horfði út um gluggann sá ég eldhaf umlykja bygginguna,“ sagði presturinn Emmanuel Herbert, í samtali við fréttastofuna.

Aðeins einn inngangur var á húsinu og hamlaði eldurinn því að Herbert kæmist þar inn. Yfirvöld hafa upplýst um það að yngstu fórnarlömb eldsvoðans hafi verið tíu ára að aldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×