Fyrrum leikmaður Manchester United og AC Milan gerist pizza bakari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2018 22:00 Jesper Blomqvist fagnar sigri í Meistaradeildinni 1999 með liðsfélögum sínum í Manchester United. Vísir/Getty
Fyrir nítján árum vann hann þrennuna með liði Manchester United en nú hefur Jesper Blomqvist snúið sér að því að fara að búa til pizzur fyrir svanga Svía. Blomqvist hefur tapað miklum peningum í vondum fjárfestingum og sagði fyrir ári að hann væri að leita sér að venjulegu starfi. „Ég hef tekið slæmar ákvarðanir og látið plata mig í slæmar fjárfestingar. Það er ekkert neyðarástand hjá mér en ég get bara ekki setið á sófanum og gert ekkert,“ sagði Jesper Blomqvist við Expressen.Efter ekonomiska smällen - Jesper Blomqvist blir nu pizzabagarehttps://t.co/oCSfWu7Pzqpic.twitter.com/NBWzBy9RBJ — SportExpressen (@SportExpressen) March 20, 2018 „Núna getið þið keypt pizzu sem ég hef bakað,“ sagði Jesper Blomqvist í fyrrnefndu viðtali en hann var í sænska fótboltalandsliðinu sem vann bronsverðlaun á HM í Bandaríkjunum 1994. Blomqvist spilaði með Manchester United frá 1998 til 2001. Hann lék 38 leiki með liðinu tímabilið 1998-98 þegar Manchester United vann ensku deildina, enska bikarinn og Meistraadeildina. Blomqvist yfirgaf hinsvegar Old Trafford eftir að hann fékk ekkert að spila tímabilin 1999/2000 og 2000/01. Frá Manchester United fór hann til Everton og Charlton en endaði síðan ferilinn á því að spila nokkur tímabil í Svíþjóð. Blomqvist lagði skóna á hilluna eftir 2010 tímabilið með Hammarby. Þá var hann búinn að vera atvinnumaður frá árinu 1992. „Við keyptum lítinn pizza stað í Lidingö. Þessi staður hefur verið þarna í nokkur ár en núna ætlum við að flytja hann á betri stað og opna nýjan stað eftir mánuð,“ sagði Blomqvist. „Ég hef verið að leita lengi að verkefni sem tengist mat eða drykk. Ég hef alltaf haft áhuga á því síðan að ég spilaði á Ítalíu. Nú loksins hef ég fundið eitthvað sem er nógu stórt og spennandi. Eftir hálft ár þá verð ég farinn að baka pizzur,“ sagði Blomqvist. Blomqvist spilaði fyrir AC Milan og Parma á Ítalíu. Markmiðið er að pizzurnar hans verði undir ítölskum áhrifum. Blomqvist flutti meðal annars ofninn inn frá Napoli. „Ég er ennþá að læra að búa til pizzu. Ég get ekki lofað því að ég ráði við háannatímann á laugardögum ennþá. Stefnan er að vera orðinn góður eftir hálf ár og þá verð ég líka að baka á laugardögum,“ sagði Blomqvist. Það má finna meira um málið hér.
Enski boltinn Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Orri á skotskónum Fótbolti Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Körfubolti Fleiri fréttir Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Sjá meira