Aron fær nýtt samningstilboð hjá Cardiff Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. maí 2018 13:00 Það er talið mjög líklegt að Aron verði áfram í bláu næsta vetur vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson hefur fengið tilboð um framlengingu á samningi sínum hjá velska liðinu Cardiff City, en núverandi samningur hans rennur út í sumar. Þetta segir í frétt Wales Online. Fyrr í vetur sagði Neil Warnock, knattspyrnustjóri Cardiff, að hann ætti von á því að Aron yfirgæfi Cardiff í sumar tækist liðinu ekki að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Það tókst liðinu hins vegar svo nú er búist við því að landsliðsfyrirliðinn verði áfram í Cardiff. Warnock á að hafa gefið Aroni og Junior Hoilett, sem einnig var boðin framlenging, nokkra daga til þess að fara yfir nýju samningana en búist er við niðurstöðu í samningamálum þeirra fyrir vikulok. Aron Einar hefur verið á mála hjá Cardiff síðan árið 2011. Hann spilaði aðeins 20 leiki fyrir liðið í vetur þar sem meiðsli hafa hrjáð hann. Akureyringurinn er um þessar mundir í Katar í endurhæfingu, en hann gekkst undir aðgerð á hné í lok apríl. Fari allt eftir óskum mun Aron Einar Gunnarsson leiða íslenska landsliðið út á völlinn í Moskvu þann 16. júní þegar Ísland mætir Argentínu á HM í fótbolta.
Enski boltinn Tengdar fréttir Warnock: Nú þarf Aron Einar að koma skríðandi til mín Hinn stórskemmtilegi stjóri Cardiff City, Neil Warnock, er bjartsýnn á að halda Aroni Einari Gunnarssyni hjá félaginu. 8. maí 2018 12:33 Aron Einar sagður geta valið úr tilboðum frá fjórum löndum Samningur Arons Einars Gunnarssonar landsliðsfyrirliða hjá Cardiff City rennur út í sumar og Aron hefur ekki viljað skrifað undir nýjan samning við velska liðið. Það streyma nefnilega til hans tilboðin samkvæmt fréttum í enskum fjölmiðlum. 9. apríl 2018 09:00 Stuðningsmenn Cardiff ósáttir við Aron Einar Landsliðsfyrirliðinnn Aron Einar Gunnarsson er kominn aftur í lið Cardiff City eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Endurkoman hefur þó ekki staðið undir væntingum og er kallað eftir því að Aron verði settur á bekkinn. 12. apríl 2018 14:00 Aron: „Þegar skurðlæknirinn er jákvæður á því að þú náir HM þá áttu von“ Aron Einar Gunnarsson er jákvæður með að ná HM í Rússlandi. Hann gekkst undir aðgerð á hné í byrjun vikunnar og er strax byrjaður að hugsa um endurkomuna. Hann segir það hjálpa sér andlega að hann sé oft fljótur að ná sér af meiðslum 3. maí 2018 09:03 Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Sjá meira
Warnock: Nú þarf Aron Einar að koma skríðandi til mín Hinn stórskemmtilegi stjóri Cardiff City, Neil Warnock, er bjartsýnn á að halda Aroni Einari Gunnarssyni hjá félaginu. 8. maí 2018 12:33
Aron Einar sagður geta valið úr tilboðum frá fjórum löndum Samningur Arons Einars Gunnarssonar landsliðsfyrirliða hjá Cardiff City rennur út í sumar og Aron hefur ekki viljað skrifað undir nýjan samning við velska liðið. Það streyma nefnilega til hans tilboðin samkvæmt fréttum í enskum fjölmiðlum. 9. apríl 2018 09:00
Stuðningsmenn Cardiff ósáttir við Aron Einar Landsliðsfyrirliðinnn Aron Einar Gunnarsson er kominn aftur í lið Cardiff City eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Endurkoman hefur þó ekki staðið undir væntingum og er kallað eftir því að Aron verði settur á bekkinn. 12. apríl 2018 14:00
Aron: „Þegar skurðlæknirinn er jákvæður á því að þú náir HM þá áttu von“ Aron Einar Gunnarsson er jákvæður með að ná HM í Rússlandi. Hann gekkst undir aðgerð á hné í byrjun vikunnar og er strax byrjaður að hugsa um endurkomuna. Hann segir það hjálpa sér andlega að hann sé oft fljótur að ná sér af meiðslum 3. maí 2018 09:03