Komst ekki í liðið á sjöunda áratugnum en er nú sestur í stjórastólinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. september 2017 23:00 Roy Hodgson á blaðamannfundinum. Vísir/Getty
Roy Hodgson, nýr knattspyrnustjóri Crystal Palace, hitti blaðamenn í dag en hann stýrir liðinu í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni á móti Southampton á heimavelli á morgun. Crystal Palace hefur hvorki fengið stig né skorað mark í fyrstu fjórum umferðum ensku úrvalsdeildarinnar og Hodgson tók við af Hollendingnum Frank de Boer sem var rekinn eftir aðeins 77 daga í starfi. Roy Hodgson lítur svo á að þetta verði gott tímabil ef hann nær að halda Crystal Palace uppi í ensku úrvalsdeildinni en liðið situr nú í botnsætinu. „Þetta verður gott tímabil ef ég næ að halda Crystal Palace uppi og stuðningsmennirnir verða ánægðir,“ sagði hinn sjötugi Roy Hodgson. BBC segir frá. Hodgson hefur verið atvinnulaus síðan að hann sagði starfi sínu lausu efir 2-1 tap enska landsliðsins á móti Íslandi í sextán liða úrslitum EM í Frakklandi. Leikurinn á móti Southampton í hádeginu á morgun verður því fyrsti leikur hans frá kvöldinu ógleymanlega í Nice. Það sem gerir þessa ráðningu sérstaka eru gömul tengsl Roy Hodgson við Crystal Palace en það var einmitt þar sem hann steig sín fyrstu skref á knattspyrnuferlinum. Roy Hodgson er frá Croydon, hverfi í suður London þar sem Palace hefur aðsetur og hann æfði með unglingaliði Crystal Palace á sjöunda áratugnum. Hodgson komst hinsvegar ekki í aðalliði. „Það er kafli í bók lífsins að opnast fyrir mig og ég hlakka til. Ég vonast til að geta glatt stuðningsfólk Crystal Palace. Það væri sérstakt fyrir mig því ég er strákur frá Croydon og var hérna þangað til að ég var 24 ára gamall,“ sagði Roy Hodgson. „Nú er þetta bara 34 leikja tímabil. Við byrjuðum illa og drógumst eftirá með því að fá ekkert stig í fyrstu fjórum leikjunum. Við erum hinsvegar að horfa á maí en ekki lok september. Deildirnar vinnast ekki og liðin falla ekki í september,“ sagði Hodgson.
Enski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf Fleiri fréttir Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Sjá meira