Tölfræðin sem lætur Gylfa líta illa út Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2017 11:30 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Everton vann langþráðan sigur í gærkvöldi en Ronaldo Koeman leyfði sér að hvíla íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson í leiknum. Sigur Everton í gær án þátttöku Gylfa bætir við tölfræði Everton-liðsins sem lætur okkar mann ekki líta vel út. Gylfi hefur nefnilega spilað sex leiki með Everton á tímabilinu og það eru einu leikirnir sem liðið hefur ekki unnið. Gylfi sat allan tímann á bekknum í gærkvöldi þegar Everton sló Sunderland út úr enska deildabikarnum með 3-0 sigri. Þetta var fyrsti sigur liðsins í 34 daga eða frá því að liðið vann 2-0 heimasigur á í Evrópudeildinni sem var jafnframt sama kvöld og Gylfi var kynntur sem nýr leikmaður Everton. Everton gerði jafntefli í tveimur fyrstu leikjum sínum með Gylfa innanborðs og hafði síðan tapað fjórum leikjum í röð án þess að skora eitt einasta mark fyrir leikinn í gær. Markið ótrúlega hjá Gylfa frá miðju á móti Hadjuk Spilt var eina mark Everton-liðsins í 443 mínútur eða þar til að Dominic Calvert-Lewin kom liðinu í 1-0 á móti Sunderland á Goodison Park í gær. Áður en Gylfi klæddist Everton-treyjunni í fyrsta sinn hafði Everton unnið fjóra fyrstu leiki sína, þrjá í forkeppni Evrópudeildarinnar og svo fyrsta leikinn sinn í ensku úrvalsdeildinni. Nú er liðið hinsvegar í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og á botni riðilsins síns í Evrópudeildinni. Eftir erfitt leikjaprógramm að undanförnu þá bíða Everton léttari leikir á næstunni. Gylfi ætti því að fá tækifæri til að laga þessa tölfræði sína strax og fagna langþráðum sigri sem leikmaður Everton.Vísir/Getty Leikir Everton á tímabilinu þar sem Gylfi hefur spilað: 1-1 jafntefli við Manchester City (Deild) 1-1 jafntefli við Hadjuk Spilt (Evrópa) 2-0 tap fyrir Chelsea (Deild) 3-0 tap fyrir Tottenham (Deild) 3-0 tap fyrir Atalanta (Evrópa) 4-0 tap fyrir Manchester United (Deild)0 sigrar í 6 leikjum (2 jafntefli)Mark á 270 mínútna frestiMarkatalan: -12 (2-14)Leikir Everton á tímabilinu þar sem Gylfi hefur ekki spilað: 1-0 sigur á Ruzomberok (Evrópa) 1-0 sigur á Ruzomberok (Evrópa) 1-0 sigur á Stoke (Deild) 2-0 sigur á Hadjuk Split (Evrópa) 3-0 sigur á Sunderland (Deildabikar)5 sigrar í 5 leikjumMark á 56 mínútna frestiMarkatalan: +8 (8-0)
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira