Gylfi var næstum því dýrasti leikmaður Everton í bara nokkra daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2017 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Everton gerði Gylfa Þór Sigurðsson að dýrasta leikmanninum í sögu félagsins þegar Everton borgaði Swansea City meira en 40 milljónir punda fyrir íslenska landsliðsmanninn í ágúst. Forráðamenn Everton reyndu hinsvegar að bæta þetta met aðeins nokkrum dögum eftir að félagið gerði Gylfa að metleikmanni í sögu félagsins.Spænska blaðið Marca slær því upp að Everton hafi boðið 66 milljón punda í spænska framherjann Diego Costa á lokadögum félagsskiptamarkaðsins. Það varð þó ekkert úr þessum kaupum þar sem að Diego Costa vildi bara komast aftur til Atletico Madrid og gat ekki hugsað sér neitt annað. Hann vildi ekki fara til Everton og vildi ekki vera áfram í Englandi. Diego Costa var búinn að stilla sig inn á endurfundi í Madrid og tilboð frá AC Milan eða öðrum félögum breytti heldur ekki skoðun hans. Gylfi missti því ekki stimpilinn „dýrasti“ leikmaður Everton og heldur honum í það minnsta fram á nýtt ár en félagsskiptaglugginn opnar aftur í janúar. Everton vantar ennþá tilfinnanlega framherja fyrir Gylfa að finna í vítateignum. Diego Costa er nú kominn til Atletico Madrid og mun ganga undir læknisskoðun hjá félaginu í dag. Hann kemur fyrst á láni út tímabilið en verður síðan væntanlega keyptur í sumar. Gylfi Þór Sigurðsson fagnaði aftur á móti langþráðum sigri um helgina þegar Everton vann endurkomusigur á Bournemouth. Þetta var fyrsti sigur félagsins á tímabilinu þar sem Gylfi hefur spilað.
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira