Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Nýliðaslagur á Amex leikvanginum í Brighton þegar heimamenn taka á móti lærisveinum Rafa Benitez frá Newcastle.
Newcastle töpuðu fyrstu tveim leikjum sínum í úrvalsdeildinni en hafa nú unnið þrjá í röð og sitja í sjöunda sæti deildarinnar.
Brighton hefur hins vegar aðeins náð einum sigri í úrvalsdeildinni, í síðasta heimaleik sínum gegn West Bromwich Albion.
Upphitun fyrir leikinn má sjá í spilaranum hér að ofan.
Nýliðaslagur í Brighton │Myndband
Tengdar fréttir

Uppgjör laugardagsins í enska │Sjáðu öll 26 mörkin
Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og voru 26 mörk skoruð.