Óþekktur Þjóðverji betri en Gylfi að taka aukaspyrnur í FIFA 18 Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. september 2017 13:00 Gylfi Þór Sigurðsson og fótboltar úti um víða veröld eru miklir vinir. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins í fótbolta, er einn af tíu bestu aukaspyrnusérfræðingunum í FIFA 18, vinsælasta fótboltatölvuleik heims. Tölvuleikjaframleiðandinn EA Sports sem gefur út leikinn birti listann á heimasíðu sinni en eins og flestir vita verður íslenska landsliðið í fyrsta sinn í þessum gríðarlega vinsæla tölvuleik. Gylfi Þór hefur þó verið til í þessum leik í mörg ár enda búinn að spila í ensku úrvalsdeildinni og þýsku 1. deildinni í sjö ár. Geggjuð spyrna Gylfa á móti ArsenalGylfi er í áttunda sæti á tíu manna lista EA Sports yfir þá bestu að koma boltanum í netið beint úr aukaspyrnum en hann er fyrir ofan Hollendinginn Memphis Depay og aldna Japanann Shunsuke Nakamurai sem spilaði eitt sinn með Celtic. Í sjöunda sætinu, sæti fyrir ofan Gylfa, er Marvin Plattenhardt, 25 ára gamall vinstri bakvörður Herthu Berlín í þýsku 1. deildinni. Það er nokkuð sérstakt þar sem Þjóðverjinn hefur aðeins skorað fimm mörk fyrir Berlínarliðið í 75 leikjum en ætli þau hafi ekki öll verið sláin inn, beint úr aukaspyrnum. Líklegastur til að skora beint úr aukaspyrnu í FIFA 18 er ítalski spyrnusérfræðingurinn Andrea Pirlo en Lionel Messi er í sjötta sæti. Gylfi Þór er eini norðurlandabúinn á tíu manna listanum.Tíu bestu aukaspyrnusérfræðingarnir í FIFA 18: 1. Andrea Pirlo, New York City FC 2. Hakan Calhanoglu, AC Milan 3. Miralem Pjanic, Roma 4. Dimitri Payet, Marseille 5. Daniel Pajero, Valencia 6. Lionel Messi, Barcelona 7. Marvin Plattenhardt, Hertha Berlín 8. Gylfi Þór Sigurðsson, Everton 9. Shunsuke Nakamurai, Júbilo Iwata 10. Memphis Depay, Lyonmynd/ea sports
Enski boltinn Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Stelpurnar okkar kættu hundruð aðdáenda og Glódís gaf óvænta gjöf Fótbolti Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Golf Brynja og Svíinn fögnuðu eftir magnað kvöld í Sjallanum Sport Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Golf Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Handbolti Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Handbolti Dagskráin í dag: Gummi Ben með nýja Messu, lokadagur Masters og stórleikur í enska Sport Fleiri fréttir Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Sjá meira