Pabbi Gylfa um markið í gær: Maður getur búist við hverju sem er frá honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2017 12:15 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Sigurður Aðalsteinsson, faðir Gylfa Þórs Sigurðssonar, var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann talaði um soninn og sérstaklega markið hans ótrúlega í Evrópudeildinni í gærkvöldi. „Ég sá þetta en ég er svo sem hættur að kippa mér upp við þetta. Maður getur búist við hverju sem er frá honum,“ sagði Sigurður í léttum tón í upphafi spjallsins við þá Heimi Karlsson og Gunnlaug Helgason. En er ekki ljóst að Gylfi ætlaði sér að skora af þessu væri? „Við höfum oft rætt þessa stöðu þegar markmenn standa framarlega. Ef þeir standa framarlega þá kíkir hann á það. Hann hefur skorað mörk langt fyrir utan teig áður. Ég man sérstaklega eftir einu marki þegar hann var í Reading á móti WBA,“ sagði Sigurður. „Þá skoraði hann sigurmarkið í framlengingu en það var svona bogabolti yfir markvörðinn en ekki svona langt frá reyndar,“ sagði Sigurður. Gylfi var hógvær í viðtali á Everton-síðunni eftir leikinn en hefur hann alltaf verið þannig. „Hann hefur alltaf verið svona og maður þarf alltaf að toga allt upp úr honum. Hann er ekkert feiminn en hægur og hógvær og hefur það sennilega frá mömmu sinni,“ sagði Sigurður. Gylfi var keyptur á dögunum fyrir meira en 40 milljónir punda og er nú kominn í stærri klúbb þar sem er meira tekið eftir honum. „Þetta stendur svolítið og fellur hvort menn hafi meðbyr eða ekki. Ég held að hann sé alveg andlega undir þetta búinn,“ sagði Sigurður. „Hann fór þarna í Tottenham og alltaf verið að tala um að hann hafi spilað undir væntingum þar. Miðað við þann spilatíma sem hann fékk þar þá var hann alveg með sömu tölfræðina og hjá öðrum klúbbum,“ sagði Sigurður. Það má sjá allt spjallið við Sigurð í spilaranum hér fyrir neðan.
Enski boltinn Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Enski boltinn Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Sjá meira