Þungskýjað yfir Emirates Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. september 2017 11:45 Arsene Wenger er í vandræðum. vísir/getty
Það er þungskýjað yfir Emirates vellinum þessa dagana. Arsenal steinlá fyrir Liverpool, 4-0, í síðasta leiknum fyrir landsleikjahléið og situr í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með þrjú stig eftir þrjá leiki. Aðeins West Ham (10) hefur fengið á sig fleiri mörk en Arsenal (8) í fyrstu þremur umferðunum. Skytturnar enduðu í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili sem er versti árangur liðsins síðan 1995. Fyrir vikið missti Arsenal af Meistaradeildarsæti í fyrsta sinn í tæpa tvo áratugi. En liðið vann bikarkeppnina í þriðja sinn á síðustu fjórum árum og Arsene Wenger var verðlaunaður með nýjum tveggja ára samningi. Óánægja stuðningsmanna Arsenal með Wenger var mikil fyrir og hún minnkaði ekkert við þessa vondu byrjun á tímabilinu. Til viðbótar við slæm úrslit missti Arsenal sterka leikmenn undir lok félagaskiptagluggans. Liðið í dag er því veikara en liðið sem hóf tímabilið. Það versta er svo kannski að Wenger virðist ekki læra af mistökunum eins og sást gegn Liverpool. Metnaðurinn til að spila góðan varnarleik var lítill og þegar boltinn tapaðist var allt opið fyrir Rauða herinn sem skoraði þrjú mörk eftir skyndisóknir í leiknum. Allt þetta hefur sést áður í leikjum Arsenal gegn hinum toppliðunum í ensku úrvalsdeildinni. Samt breytist ekkert. Það er ólíklegt að Arsenal verði í titilbaráttu í vetur og stefnan verður væntanlega sett á að tryggja sér Meistaradeildarsæti, annaðhvort með því að enda í einu af efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar eða vinna Evrópudeildina eins og Manchester United gerði í fyrra.Þessi grein birtist fyrst í sérblaði um enska boltann 2. september síðastliðinn.
Enski boltinn Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn „Heppinn að fá að lifa drauminn“ Golf Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Enski boltinn Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Íslenski boltinn Kassi í Mosfellsbæinn Fótbolti Fleiri fréttir Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Sjá meira