Conte: Koeman búinn að setja saman mjög sterkt lið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2017 15:30
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, hrósaði starfi hollenska knattspyrnustjórans Ronald Koeman á félagsskiptamarkaðnum í sumar en Everton hefur bætt við sig íslenskum landsliðsmanni og fleiri öflugum leikmönnum. Everton heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn þar sem Gylfi Þór Sigurðsson mun væntanlega byrja sinn fyrsta leik fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni. Stærstu kaup Koeman í sumar voru kaupin á Gylfa Þór Sigurðssyni en Everton hefur aldrei borgað meira fyrir einn leikmann. Gylfi stimplaði sig inn með frábæru marki á móti Hajduk Split í Króatíu í gær. Auk þess að kaupa Gylfa fyrir rúmar 40 milljónir punda þá borgaði Everton 25 milljónir fyrir Jordan Pickford, markvörð Sunderland og Michael Keane, miðvörð Burnley. Félagið keypti einnig Davy Klaassen frá Ajax fyrir 23,5 milljónir punda, Sandro Ramírez frá Malaga fyrir 5,2 milljónir punda og Henry Onyekuru frá Eupen fyrir 6,8 milljónir punda. „Ronald Koeman er búinn að setja saman mjög sterkt lið. Everton hefur bætt sig mikið á þessu tímabili og við þurfum að mæta með fulla einbeitingu á sunnudaginn,“ sagði Antonio Conte á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Það er mikilvægt að byggja ofan á góðan sigur á Tottenham og halda áfram á sömu braut,“ sagði Conte. Leikur Chelsea og Everton fer fram á Stamford Bridge í London og hefst klukkan 12.30 á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira