Telur lögleiðingu á hjónaböndum hinsegin fólks tímaspursmál Ingvar Þór Björnsson skrifar 5. ágúst 2017 12:26 Leo Varadkar er fyrsti forsætisráðherra Írlands sem er samkynhneigður Vísir/AFP
Forsætisráðherra Írlands, Leo Varadkar, telur einungis tímaspursmál hvenær hjónabönd samkynhneigðra verða lögleidd í Norður-Írlandi en Norður-Írland er eini hluti Bretlands þar sem hjónabönd hinsegin fólks eru ekki leyfð samkvæmt lögum.Varadkar er í opinberri heimsókn í landinu og hélt ræðu á „The northern Whig Club” í Belfast þar sem var verið að undirbúa Gleðigönguna. Michelle O’Neill, þingflokksformaður þjóðernisflokksins Sinn Fein á Norður-Írlandi, mætti einnig á viðburðinn ásamt fjölmörgum talsmönnum réttinda hinsegin fólks.Leo Varadkar er fyrsti forsætisráðherra Írlands sem er samkynhneigður en hann greindi frá því í útvarpsviðtali árið 2015 þegar kosningar stóðu yfir í Írlandi um lögleiðingu á hjónaböndum samkynhneigðra.Óviðeigandi afskipti af stjórnmálum landsinsVar hann gagnrýndur harðlega af nokkrum þingmönnum stærsta flokks Norður Írlands, DUP, fyrir framkomu sína á „The northern Whig Club”. Í síðustu viku lýstu nokkrir þingmenn DUP yfir áhyggjum sínum með ákvörðun Varadkar að mæta á viðburðinn. Töldu þeir þetta vera óviðeigandi afskipti af stjórnmálum nágrannalandsins.Leo sagði tilgang ræðunnar ekki vera þann að koma einhverjum í uppnám og skapa glundroða, heldur að sýna stuðning og undirstrika það að allir skulu vera jafnir fyrir lögum. Spurður út í hvenær hann teldi að Norður Írland myndi lögleiða hjónabönd hinsegin fólks sagði hann að það væri einungis tímaspursmál. Tók hann einnig fram í kjölfarið að ákvörðunin væri að sjálfsögðu í höndum norður-írska þingsins en að landið hlyti að fara að feta í fótspor annarra landa í Vestur-Evrópu í þessum málum.Lýðræðislegi sambandsflokkurinn leggur stein í götu hinsegin fólksLýðræðislegi sambandsflokkurinn, DUP, er stærsti flokkurinn á norður-írska þinginu. Flokkurinn hlaut 28,1 prósent atkvæða í þingkosningum í mars á þessu ári. Lýðræðislegi sambandsflokkurinn hefur ítrekað komið í veg fyrir lögleiðingu á hjónaböndum samkynhneigðra þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni að meirihluti almennings myndi styðja frumvarp þess efnis. Trúarbrögð eru veigamikill þáttur í stjórnmálum á Norður-Írlandi en stærstu flokkarnir sækja fylgi sitt annaðhvort til þeirra sem eru mótmælendatrúar eða til kaþólikka. DUP er flokkur mótmælenda. Þess má geta að þeir vilja að Norður-Írland verði áfram hluti af sameinuðu Bretlandi.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Sjá meira