Enski boltinn

Bournemouth missti niður þriggja marka forystu á móti Arsenal | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arsenal skoraði þrjú mörk á síðustu tuttugu mínútum og tryggði sér 3-3 jafntefli á útivelli á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta eru grátleg úrslit fyrir heimamenn í Bournemouth sem spiluðu lengstum frábærlega og fengu færi til að bæta við mörkum áður en þeir misstu mann af velli átta mínútum fyrir leikslok. Arsenal-liðið var kraftlaust og þreytulegt í leiknum en fór í gang eftir að hafa lent 3-0 undir.

Arsenal-liðið fékk eitthvað út úr þessum leik þótt lengi hafi stefnt í stórtap hjá leikmönnum Arsene Wenger. Olivier Giroud skoraði jöfnunarmarkið í uppbótartíma en hann lagði upp hin tvö mörkin fyrir þá Alexis Sánchez og Lucas Pérez.

Leikmenn Arsenal mættu ekki til leiks í fyrri hálfleiknum og fyrstu tuttugu mínúturnar voru algjör martröð fyrir liðið. Heimamenn voru aftur á móti í fínu formi og buðu upp á flottan fótbolta á móti stórliðinu frá London.

Charlie Daniels kom Bournemouth í 1-0 á 16. mínútu eftir að Arsenal hreinlega gleymdi honum. Junior Stanislas skipti boltanum yfir og Daniels gabbaði Bellerin áður en hann skoraði.

Aðeins fimm mínútum síðar var staðan orðin 2-0 eftir að Callum Wilson skoraði úr vítaspyrnu. Vítið var dæmdi fyrir brot Granit Xhaka á Ryan Fraser.

Bournemouth lék annars frábærlega í fyrri hálfleiknum og leikmenn Arsenal komust lítið áleiðis.

Ræða Arsene Wenger náði ekki að kveikja í hans mönnum því Arsenal-liðið náði ekki mikið að laga sinn leik í seinni hálfleiknum.

Mark var réttilega dæmt af Bournemouth á 56. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar kom Ryan Fraser Bournemouth-liðinu i 3-0. Fraser fór þá illa með Hector Bellerin sem leit ekki vel út þarna frekar en í fyrsta markinu.

Alexis Sánchez minnkaði muninn á 70. mínútu eftir stoðsendingu Olivier Giroud og kom með smá spennu inn í lokakafla leiksins.

Lucas Pérez opnaði síðan markareikning sinn í ensku úrvalsdeildinni þegar hann minnkaði muninn í 3-2 á 75. mínútu með viðstöðulausu skoti úr teignum eftir sendingu frá Olivier Giroud.

Arsenal var allt í einu búið að skora tvö mörk á fimm mínútum og enn nægur tími til að bæta við fleiri mörkum og fá eitthvað út úr leiknum.

Bournemouth missti mann af velli á 82. mínútu þegar fyrirliðinn Simon Francis fékk beint rautt spjald fyrir brot á Aaron Ramsey. Skömmu áður fékk Dan Gosling algjört dauðafæri til að tryggja sigurinn.

Olivier Giroud jafnaði síðan metin með skalla á annarri mínútu í uppbótartíma þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Granit Xhaka. Arsenal hafði tíma til að skora sigurmarkið en það kom ekki og liðin sættust á stig á lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×