Eitthvað verður undan að láta í Manchester Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. september 2017 10:00 José Mourinho og Pep Guardiola. vísir/getty
Barátta José Mourinho og Pep Guardiola um Manchester-borg síðasta vetur stóð ekki undir væntingum. Það var afskaplega grunnt á því góða milli Mourinho og Guardiola þegar þeir stýrðu erkifjendunum Real Madrid og Barcelona á Spáni. Mourinho var ráðinn til Madrídarliðsins til að fella Guardiola og Börsungana af stalli sínum. Mourinho beitti öllum brögðum til þess og náði á endanum markmiði sínu. Real Madrid varð spænskur meistari vorið 2012 og Guardiola hætti hjá Barcelona. Ári seinna fór Mourinho sömu leið. Leiðir þeirra lágu aftur saman í fyrra þegar þeir voru ráðnir knattspyrnustjórar Manchester-liðanna, United og City. Fyrir fram var búist við því að þau myndu berjast um Englandsmeistaratitilinn. En svo fór ekki. Liðin ollu bæði vonbrigðum í ensku úrvalsdeildinni og Mourinho og Guardiola voru stilltir og létu vera að bauna hvor á annan. Bæði lið byrjuðu vel í fyrra og þá sérstaklega City sem vermdi toppsætið framan af tímabili. En svo kom Chelsea á fullu stími, hirti toppsætið í 12. umferð og lét það ekki af hendi það sem eftir lifði tímabils. City endaði að lokum í 3. sæti, 15 stigum á eftir Chelsea.Það fór vel á með Guardiola og Mourinho á síðasta tímabili.vísir/gettyUnited hafnaði í 6. sæti deildarinnar, heilum 25 stigum á eftir Antonio Conte og hans mönnum. United vann hins vegar enska deildabikarinn og Evrópudeildina sem hleypti liðinu bakdyramegin inn í Meistaradeild Evrópu. City spilaði á köflum frábæran fótbolta í fyrra en varnarleikurinn og sérstaklega markvarslan varð liðinu að falli. Guardiola lánaði Joe Hart til Ítalíu og fékk Claudio Bravo í markið. Sílemaðurinn átti góð ár hjá Barcelona en var eins og fiskur á þurru landi í ensku úrvalsdeildinni. Á tímabili virtist það vera nóg fyrir andstæðinga City að hitta markið til að skora því það lak allt inn. Guardiola fór því í markvarðaleit og fann Brasilíumanninn Ederson sem hann gerði að dýrasta markverði sögunnar. Guardiola skipti einnig alveg um bakverði. Pablo Zabaleta, Bacary Sagna, Gaël Clichy og Aleksandar Kolarov, sem eru allir komnir yfir þrítugt, voru látnir fara. Í staðinn keypti Spánverjinn Benjamin Mendy, Kyle Walker og Danilo á samtals tæplega 125 milljónir punda. Auk þess keypti City Portúgalann Bernardo Silva frá Monaco. Vandamál United á síðasta tímabili voru af allt öðrum toga. Liðið skoraði bara 54 mörk í ensku úrvalsdeildinni, aðeins fjórum mörkum meira en Crystal Palace sem endaði í 14. sæti, og gekk bölvanlega að klára leiki. Strákarnir hans Mourinho töpuðu aðeins fimm leikjum á síðasta tímabili en gerðu 15 jafntefli, þar af 10 á Old Trafford.Úr leik Manchester-liðanna á undirbúningstímabilinu.vísir/gettyTil að ráða bót á þessu sótti Mourinho Romelu Lukaku til Everton. Hann hefur stundum verið gagnrýndur fyrir að skora aðallega gegn lakari liðum en það er nákvæmlega það sem United þarf; mörk til að klára leiki gegn minni liðum. Mourinho endurnýjaði einnig kynnin við Nemanja Matic sem hefur byrjað frábærlega í rauða búningnum og gert Paul Pogba kleift að blómstra. Þá keypti United sænska miðvörðinn Victor Lindelöf frá Benfica og samdi aftur við landa hans, Zlatan Ibrahimovic. Líkt og fyrir síðasta tímabil búast flestir við því að Manchester-liðin berjist um Englandsmeistaratitilinn í vetur. Það virðist þó vera meiri innistæða fyrir þeim spám í ár. Bæði lið eru betur skipuð og betur samansett en í fyrra. Svo er það staðreynd að bæði Mourinho og Guardiola verða alltaf landsmeistarar á öðru tímabili með sín lið. Það verður því eitthvað undan að láta í Manchester í vetur.Þessi grein birtist fyrst í sérblaði um enska boltann 2. september síðastliðinn.
Enski boltinn Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn „Það trompast allt þarna“ Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Sjá meira