Gestirnir fá inniskó til að ganga í um húsið | Myndband sem sýnir heimili Mesut Özil Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2017 23:30 Ætli Mesut Özil hafi kannski verið að segja Laurent Kocsielny frá húsinu sínu þegar þessi mynd var tekin. Vísir/Getty
Þýski landsliðsmaðurinn Mesut Özil bauð upp á sýnisferð um heimili sitt í London á dögunum en myndbandið var gert í samvinnu við tímaritið Hypebeast. Mesut Özil fór með myndatökumanninn um húsið sitt og sýndi honum bæði flottustu herbergin, fötin sín og bíla. Með í för var síðan hundurinn hans Balboa. Það vakti vissulega að Özil býður öllum gestum sínum upp á inniskó til að ganga í um húsið og hann sjálfur er mjög upptekinn af allskonar skófatnaði. Það þarf enginn að vera á sokkalestunum þegar hann kemur í heimsókn til Mesut Özil. Skórnir hans fá heiðurssess í fataherberginu og þar eru strigaskórnir í aðalhlutverki eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.Welcome to my home, welcome to London. Thanks for the visit @HYPEBEASThttps://t.co/jSJLSkVKFt — Mesut Özil (@MesutOzil1088) September 26, 2017 Það er líka örugglega margir sem öfunda Mesut Özil af kvikmynda- og leikjatölvu herberginu hans þar sem væri ekki slæmt að horfa á góðar myndir, fótbolta eða spila Play Station. Fyrir sögufróða er athyglisvert að Özil hefur mynd af Mehmet II Tyrkjasoldán á heiðursstað á heimilinu og sér sérstaka ástæðu til að vekja athygli á því. Özil er af tyrkneskum ættum en bæði hann og foreldrar hans fæddust í Þýskalandi. Mehmet II hertók árið 1453 hina fornu höfuðborg Rómaveldis, Konstanínópel, og heitir hún síðan Istanbúl. Soldáninn er því táknmynd sigurgöngu Tyrkja sem í eina tíð virtust þess albúnir að ná undir sig allri Evrópu. Það er því athyglisvert að Özil hafi hann svo mjög í heiðri. Mesut Özil er búinn að koma sér mjög vel fyrir í London en hann er á sínu fimmta tímabili með félaginu eftir að hafa komið þangað frá Real Madrid árið 2013. Í 166 leikjum með félaginu hefur hann skorað 32 mörk og gefið 57 stoðsendingar en hann hefur þrisvar orðið enskur bikarmeistari með félaginu. Özil hefur ekki gengið frá nýjum samningi við Arsenal en núverandi samningur rennur út næsta sumar. Það verður örugglega eftirsjá eftir húsinu flytji Özil á endanum frá London.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira