Fékk yfir 250 þúsund jólakort og á nú líka mark mánaðarins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2017 22:15 Bradley Lowery. Vísir/AFP
Fimm ára stuðningsmaður Sunderland stal hjörtum Breta um jólin en strákurinn berst við krabbamein. Bradley Lowery var heiðraður fyrir leik Sunderland og Chelsea í desember og markið sem hann skoraði við það tækifæri fékk viðurkenningu sem annað af mörkum mánaðarins hjá þættinum „Match of the Day“. BBC segir frá. Bradley Lowery deildi marki mánaðarins með Manchester United manninum Henrikh Mkhitaryan sem skoraði með spordrekaspyrnu á móti Sunderland. Mkhitaryan fékk 39,9 prósent atkvæða en átta mörk voru tilnefnd. Forráðamenn „Match of the Day“ ákváðu hinsvegar að verða við fjölmörgum óskum um að mark Bradley Lowery yrði einnig verðlaunað. Þeir hafa fengið mikið hrós fyrir þá ákvörðun sína. Bradley Lowery skoraði markið umrædda framhjá Asmir Begovic, varamarkverði Chelsea. Bradley Lowery fékk í kjölfarið yfir 250 þúsund jólakort frá fólki í Bretlandi sem tók miklu ástfóstri við þennan litla strák sem vinnur hug og hjörtu allra sem kynnast honum. Hann á harðri baráttu við sjaldgæft og illkynja krabbamein. Móðir Bradley Lowery segir strákinn sinn hafa verið afar kátur þegar hann sá að markið hans var valið mark mánaðarins. Hann fékk að horfa á „Match of the Day“ þáttinn daginn eftir. Móðir hans vildi þakka sérstaklega bæði BBC og Sunderland fyrir ómetanlegan stuðning á þessum erfiðu tímum.A seriously ill five-year-old boy who scored a penalty for Sunderland has won #MOTD's Goal of the Month award.➡️ https://t.co/2ha4zVQdLC pic.twitter.com/6EJujtrvQ8— BBC Sport (@BBCSport) January 2, 2017
Enski boltinn Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti Elsti maðurinn til að vinna leik á HM í pílu Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Fleiri fréttir Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Mjög hættulegur vítahringur að mati Arteta Henry ekki hrifinn af hegðun Arsenal-manna í leikslok Sádi-arabísk félög sögð vilja kaupa Mo Salah „Ekki gleyma mér“ Sjá meira