Fabregas: Algjör synd að ég fékk ekki að byrja bikarúrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2017 14:00 Cesc Fabregas horfir á leikmenn Arsenal fagna sigri í bikaúrslitaleiknum. Vísir/Getty
Cesc Fabregas var ekki í byrjunarliði Chelsea á Wembley í gær þegar liðið tapaði 2-1 í bikarúrslitaleiknum á móti hans gömlu félögum í Arsenal. Fabregas hefur aðeins fimmtán sinnum verið í byrjunarliði Chelsea á leiktíðinni en hafði byrjað fjóra af síðustu sex leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið tryggði sér endanlega enska meistaratitilinn. „Ég var í mjög góðu formi og það er algjör synd að ég fékk ekki að byrja leikinn,“ sagði Cesc Fabregas við BBC eftir leikinn. „Mér fannst ég vera að spila vel , meira að segja mjög vel síðustu mánuði,“ sagði Fabregas. „Auðvitað vilja allir leikmenn fá að spila meira. Það er í genum sigurvegarans og ég er einn af þeim. Ég er samt hér til að gera það sem liðinu vantar,“ sagði Fabregas. „Stundum snýst þetta bara um ákvörðun þjálfarans. Ég tel að ég hafi ekki geta gert mikið meira á þessu tímabili. Þjálfarinn ræður þessu og maður verður að virða það,“ sagði Cesc Fabregas sem hefur spilað með Chelsea frá því að hann kom þangað frá Barcelona 2014. Það eru einhverjar vangaveltur um að Fabregas gæti verið á förum frá Chelsea og hann sjálfar útilokar ekki neitt. „Það getur allt gerst en ég hef alltaf fundið fyrir ást frá stuðningsmönnum Chelsea. Þetta snýst bara um að breyta skoðun stjórans,“ sagði Fabregas.
Enski boltinn Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira